L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
05.05.2009 08:05
|
Grétar Magnússon
Agger ánægður með nýjan samning
Daniel Agger segist vera hæstánægður með að hafa samþykkt nýjan fjögurra ára samning við félagið. Agger skrifaði undir um helgina og spilaði svo gegn Newcastle á sunnudaginn var þar sem liðið hélt hreinu.
Framtíð Danans hefur verið mikið rædd undanfarna mánuði og um tíma leit út fyrir hann myndi vilja yfirgefa félagið. Hann er hinsvegar í skýjunum yfir því að hafa framlengt samningi sínum.
,,Við höfum samið og auðvitað er ég ánægæður með að vera áfram hjá Liverpool vegna þess að ég hef verið að vinna að því undanfarin ár. Það er mikilvægt að hafa trú stjórans sem leikmaður því ef hún er ekki til staðar þá er maður líklega ekki hjá rétta félaginu."
Um leikinn við Newcastle sagði Agger: ,,Ég held að frammistaða okkar undanfarið hafi verið mjög góð og við vitum að það eina sem við getum gert er að vinna okkar leiki, meira getum við ekki gert."
,,Við vorum óheppnir að skora ekki meira en þrjú mörk og í raun var ekki nógu gott að hafa ekki skorað fleiri mörk. Það er alveg eins líklegt að markamunurinn skipti einhverju máli þegar upp er staðið í lok tímabils."
,,Það jákvæða er að við héldum hreinu en við höfum verið að fá á okkur mörk í undanförnum leikjum og það er eitthvað sem við erum ekki vanir."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir