L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
01.05.2009 15:05
|
Grétar Magnússon
Agger nálægt því að skrifa undir nýjan samning
Rafael Benítez staðfesti það í dag að Daniel Agger er nálægt því að samþykkja nýjan samning við félagið. Framtíð Danans hefur verið óráðin um hríð vegna þess að hann vill m.a. fá að spila meira.
,,Við erum mjög nálægt því að ná samkomulagi," staðfesti Benítez í dag. ,,Við erum bara að bíða eftir nokkrum smáatriðum en þetta er nánast búið. Við verðum að bíða aðeins lengur."
,,Hann er mjög ánægður hér og ég hef ávallt stutt hann. Vonandi tekst okkur að klára samninginn."
Í fréttum morgunsins mátti lesa að Javier Mascherano væri óviss um langtíma framtíð sína hjá félaginu en Benítez vísaði því á bug.
,,Ég var að spjalla við Javier og allt er í góðu lagi. Hann er mjög ánægður hér vegna þess að hann veit að stuðningsmennirnir elska hann. Hann getur lítið í því gert þó að stór félög séu að spyrjast fyrir um hann vegna þess að hann er heimsklassaleikmaður, en hann er mjög ánægður hjá félaginu."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld