| Sf. Gutt

Steven Gerrard líst vel á fá Kenny til starfa

Staðfest hefur verið að viðræður séu hafnar milli Rafael Benítez og Kenny Dalglish um að Kenny komi til starfa hjá Liverpool. Steven Gerrard líst mjög vel á að fá Kenny til félagsins. Hann telur að Kenny myndi hafa mikið aðdráttarafl fyrir unga leikmenn. Steven hafði þetta að segja í viðtali við dagblaðið Mirror. 

"Fyrst þegar ég heyrði fréttirnir hugsaði ég strax að að þetta væru frábærar fréttir og það væri um að gera að fá hann strax til starfa. Maðurinn er jú goðsögn. Það er frábær hugmynd að fá Kenny og það myndi kæta alla hér hjá félaginu. Við getum sett þetta upp svona. Ef ég væri orðinn ungur leikmaður í annað sinn og mörg félög vildu gera samning við mig þá myndi ég semja strax við Liverpool ef Kenny Dalglish kæmi og bæði mig að gera samning við Liverpool." 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan