| Sf. Gutt
Unglingalið Liverpool gulltryggði í kvöld sæti sitt í úrslitaleik Unglingabikarkeppninnar. Liðið lagði þá Birmingham City að velli 3:1 í seinni leik liðanna sem fram fór á Anfield Road. Liverpool vann fyrri leik liðanna 3:0 og rimmuna samtals 6:1. Þetta er í þriðja sinn þriðja sinn á fjórum árum sem Liverpool leikur til úrslita. Það er auðvitað frábær árangur og mikið gleðiefni fyrir félagið.
Liverpool var með pálmann í höndunum eftir 3:0 sigur í fyrri leiknum í Birmingham og mikið mátti gerast ef liðið hefði átt að missa af sæti í úrslitaleiknum. Liverpool hóf leikinn af krafti og David Amoo komst í gott færi snemma leiks en varnarmaður bjargaði skoti hans á síðustu stundu. Góð byrjun Liverpool skilaði sér á 17. mínútu. Lauri Dalla Valle sendi þá yfir á Adam Pepper sem var við fjærstöngina. Dean Lyness varði skot hans vel en Lauri tók frákastið og kom boltanum í markið í annarri tilraun. Gestirnir voru nærri því að jafna á 24. mínútu þegar markmaðurinn Dean Bouzanis missti fyrirgjöf en Joe Kennedy kom til hjálpar með því að bjarga á línu. Litlu síðar varði Dean vel hinu megin frá Luari sem var mjög grimmur í sókninni. Birmingham náði svo óvænt að jafna á 44. mínútu þegar Ashley Sammons skoraði með bylmingsskoti utan vítateigs. Staðan var því 1:1 í leikhléi.
Liverpool hóf síðari hálfleikinn af krafti og á 53. mínútu sendi Chris Buchtmann langa sendingu fram völlinn. Thomas Ince stakk boltanum á Alex Kacaniklic sem braust í gegn of lyfti boltanum yfir markvörð Birmingham. Vel gert hjá sænska stráknum. Liverpool gulltryggði svo sigurinn á 58. mínútu. Daniel Ayala sparkaði langt fram völlinn. Lauri var fyrstur að boltanum, braust framhjá einum varnarmanni og smellti svo boltanum í markið þegar markmaðurinn kom á móti honum. Enn eitt markið hjá Finnanum sem hefur skorað 20 mörk á leiktíðinni. Hann skoraði fjögur af sex mörkum í þessari undanúrslitarimmu og alls hefur hann skorað sjö í keppninni til þessa! Fátt gerðist það sem eftir var af leiknum. Skotinn Alex Cooper komst næst því að skora undir lokin en skot hans strauk stöngina. Sigur Liverpool var öruggur og strákarnir okkar fögnuðu sæti í úrslitaleik Unglingabikarkeppninnar!
Liverpool: Dean Bouzanis, Daniel Ayala, Joe Kennedy, Adam Pepper (Jack Robinson 57. mín.), Andre Wisdom, Chris Buchtmann, Stephen Irwin, Tom Ince, David Amoo, Alex Kacaniklic (Alex Cooper 84. mín.) og Lauri Dalla Valle (Karl Clair 80. mín.). Ónotaðir varamenn: Deale Chamberlain og Conor Coady.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Lauri Dalla Valle sem var hættulegur allan leikinn.
Liverpool vann Unglingabikararinn árin 2006 og 2007 en liðið vann keppnina fyrst árið 1996. Liðið leikur nú til úrslita í þriðja sinn á fjórum árum og er það auðvitað frábær árangur. Liverpool mætir Arsenal í úrslitaleiknum. Skytturnar unnu öruggan sigur á Manchester City 6:2 samanlagt og þykja hafa mjög góðu liði á að skipa. Það býr líka mikið í ungliðum Liverpool og það verður gaman að fylgjast með úrslitarimmunni. Leikið verður heima og að heiman í henni.
TIL BAKA
Unglingarnir gulltryggðu úrslitasætið!
Unglingalið Liverpool gulltryggði í kvöld sæti sitt í úrslitaleik Unglingabikarkeppninnar. Liðið lagði þá Birmingham City að velli 3:1 í seinni leik liðanna sem fram fór á Anfield Road. Liverpool vann fyrri leik liðanna 3:0 og rimmuna samtals 6:1. Þetta er í þriðja sinn þriðja sinn á fjórum árum sem Liverpool leikur til úrslita. Það er auðvitað frábær árangur og mikið gleðiefni fyrir félagið.Liverpool var með pálmann í höndunum eftir 3:0 sigur í fyrri leiknum í Birmingham og mikið mátti gerast ef liðið hefði átt að missa af sæti í úrslitaleiknum. Liverpool hóf leikinn af krafti og David Amoo komst í gott færi snemma leiks en varnarmaður bjargaði skoti hans á síðustu stundu. Góð byrjun Liverpool skilaði sér á 17. mínútu. Lauri Dalla Valle sendi þá yfir á Adam Pepper sem var við fjærstöngina. Dean Lyness varði skot hans vel en Lauri tók frákastið og kom boltanum í markið í annarri tilraun. Gestirnir voru nærri því að jafna á 24. mínútu þegar markmaðurinn Dean Bouzanis missti fyrirgjöf en Joe Kennedy kom til hjálpar með því að bjarga á línu. Litlu síðar varði Dean vel hinu megin frá Luari sem var mjög grimmur í sókninni. Birmingham náði svo óvænt að jafna á 44. mínútu þegar Ashley Sammons skoraði með bylmingsskoti utan vítateigs. Staðan var því 1:1 í leikhléi.
Liverpool hóf síðari hálfleikinn af krafti og á 53. mínútu sendi Chris Buchtmann langa sendingu fram völlinn. Thomas Ince stakk boltanum á Alex Kacaniklic sem braust í gegn of lyfti boltanum yfir markvörð Birmingham. Vel gert hjá sænska stráknum. Liverpool gulltryggði svo sigurinn á 58. mínútu. Daniel Ayala sparkaði langt fram völlinn. Lauri var fyrstur að boltanum, braust framhjá einum varnarmanni og smellti svo boltanum í markið þegar markmaðurinn kom á móti honum. Enn eitt markið hjá Finnanum sem hefur skorað 20 mörk á leiktíðinni. Hann skoraði fjögur af sex mörkum í þessari undanúrslitarimmu og alls hefur hann skorað sjö í keppninni til þessa! Fátt gerðist það sem eftir var af leiknum. Skotinn Alex Cooper komst næst því að skora undir lokin en skot hans strauk stöngina. Sigur Liverpool var öruggur og strákarnir okkar fögnuðu sæti í úrslitaleik Unglingabikarkeppninnar!
Liverpool: Dean Bouzanis, Daniel Ayala, Joe Kennedy, Adam Pepper (Jack Robinson 57. mín.), Andre Wisdom, Chris Buchtmann, Stephen Irwin, Tom Ince, David Amoo, Alex Kacaniklic (Alex Cooper 84. mín.) og Lauri Dalla Valle (Karl Clair 80. mín.). Ónotaðir varamenn: Deale Chamberlain og Conor Coady.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Lauri Dalla Valle sem var hættulegur allan leikinn.
Liverpool vann Unglingabikararinn árin 2006 og 2007 en liðið vann keppnina fyrst árið 1996. Liðið leikur nú til úrslita í þriðja sinn á fjórum árum og er það auðvitað frábær árangur. Liverpool mætir Arsenal í úrslitaleiknum. Skytturnar unnu öruggan sigur á Manchester City 6:2 samanlagt og þykja hafa mjög góðu liði á að skipa. Það býr líka mikið í ungliðum Liverpool og það verður gaman að fylgjast með úrslitarimmunni. Leikið verður heima og að heiman í henni.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

