Forsíða

Frétt

28.03.2009 22:03 | Sf. Gutt

Martin Kelly lánaður

Liverpool hefur lánað varnarmanninn efnilega Martin Kelly. Hann verður hjá Huddersfield Town til vors. Huddersfield leikur í þriðju deild ef atvinnumannadeildinar þrjár eru allar taldar. Liðið er um miðja deild.

Martin þykir einn efnilegasti leikmaður Liverpool og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu í Hollandi fyrir jólin þegar Liverpool vann góðan 3:1 sigur á PSV Eindhoven. Martin hefur verið að spila með undir 19 ára landsliði Englands á þessari leiktíð. Hann lék með liðinu gegn Tékkum á miðvikudagskvöldið og þótti standa sig vel. Ekkert mark var skorað í leiknum.

Þess má geta að Liverpool lánaði annan leikmann núna í vikunni. Svíinn Astrit Ajdarevic fór til Leicester City og spilar með Refunum það sem eftir er leiktíðar. Hjá Leicester eru þeir David Martin og Jack Hobbs í láni og hafa þeir staðið sig vel hjá Leicester sem leiðir þriðju deildina. Talað hefur verið um að Astrit, sem varð Unglinabikarmeistari með Liverpool árið 2007, muni yfirgefa Liverpool í sumar.




Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin