Héraðsmenn og nærsveitungar!
Tengiliður Liverpool klúbbsins á Héraði hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu!
Hér með tilkynnist að stuðningsmenn Liverpool, á Fljótsdalshéraði og nærsveitum, geta að öllu jöfnu reiknað með því að hægt verði að berja leiki Liverpool augum á Gistihúsinu á Egilsstöðum á bökkum Lagarfljóts. Hægt verður að slökkva svengd og þorsta eftir þörfum þar. Eins og fyrr segir verður hægt að sjá leiki Liverpool að öllu jöfnu. Hugsanlega verður húsnæðið teppt af og til vegna funda en það ætti að vera í undantekningartilfellum.
Þetta eru ekki ný tíðindi fyrir stuðningsmenn Liverpool á Héraði en rétt þótti að minna á Gistihúsið og möguleikann á að horfa á Liverpool spila þar. Á þessari leiktíð hefur verið hægt að sjá flesta leiki Liverpool á Gistihúsinu. Næsti leikur Liverpool er við Real Madrid annað kvöld. Fjölmennum!
Konráð Alexander Warén
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

