Ykkar skoðun
Við könnuðum á dögunum hvaða skoðun þið hefðuð á sölunni á Robbie Keane til Tottenham. Flestir töldu að Robbie hefði átt að fá fleiri tækifæri hjá Liverpool. Flestir sem tóku afstöðu um söluna á honum töldu að það hefði verið rétt að selja Írann. Um helmingi færri töldu að ekki hefði átt að selja Robbie. Þetta eru nokkuð áhugaverðar niðurstöður.
Hér er niðurstaðan úr könnuninni!
Hann hefði átt að fá fleiri tækifæri 40,72 %
Það var rétt að selja hann! 35,64 %
Það var rangt að selja hann! 15,20 %
Ég er ekki viss 8,44 %
Heildarfjöldi atkvæða: 2085.
Svo er gaman að rifja upp hvernig þið tölduð Robbie Keane eiga eftir að standa sig hjá Liverpool. Við könnuðum það fljótlega eftir að Liverpool keypti fyrirliða írska landsliðins síðasta sumar. Skemmst er frá því að segja að drjúgur meirihluti ykkar taldi að Robbie ætti eftir að vegna mjög vel hjá Liverpool! Því miður þá gekk það ekki eftir.
Hér er niðurstaðan úr þeirri könnun!
Hann á eftir að blómstra! 63,12 %
Svona þokkalega. 21,77 %
Ég er ekki viss. 8,72 %
Hann á ekki eftir að reynast vel. 6,39 %
Heildarfjöldi atkvæða: 2581.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

