| Sveinn Waage

UPPSELT Á ÁRSHÁTÍÐINA!?

Nei ekki alveg.  En við megum búast við frétt þess efnis fljótlega eftir að miðar fara í sölu á næstu dögum. Í ár er 15 ára afmæli Liverpoolklúbbsins og verður árshátíðin því sú veglegasta til þessa. Árshátíðin verður haldinn laugardaginn 28. mars.

Hátíðin verður í nýjum salarkynnum og sá ekki af verri endanum. Hæsti og flottasti salur landsins mun hýsa okkur, ekkert minna.

Ofan í bestu stuðningsmenn landsins dugar svo ekkert minna en kræsingar útbúnar af fastamanni í kokkalandsliðinu. Það verður ekkert jarm á diskum heldur baulandi steik með öllu.

Síðasta vísbendingin að sinni er sú að erlendur gestur hátíðarinnar verður frægasta lifandi goðsögn Liverpool og hananú!

Þá eru ótalin fjölmörg atriði um kvöldið og ball á eftir.

Þetta verður, eins og þeir segja: "LEGENDARY"!

Miðarnir fara í sölu næstu daga. Fylgist því vel með hérna á síðunni og bregðist fljótt við. Verðið mun koma þægilega á óvart.

SÍÐAST VAR UPPSELT TVEIMUR VIKUM FYRIR ÁRSHÁTÍÐ!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan