Yossi ánægður með stigin gegn Sunderland
Yossi Benayoun var ánægður með að Liverpool skyldi komast á sigurbraut í deildinni með sigrinum á Sunderland í gærkvöldi. Liverpool hafði gert jafntefli og tapað í síðustu tveimur deildarleikjum. Yossi gulltryggði sigur Liverpool með því að skora seinna markið í leiknum.
"Ég er ánægður með að hafa skorað en mestu skipti að ná öllum stigunum sem voru í boði. Það var mikilvægt að komast aftur á sigurbraut eftir að við töpuðum gegn Middlesborough. Við vorum mjög vonsviknir eftir þann leik því við áttum von á að vinna Middlesborough. En í kvöld náðum við að skila okkar verki. Það var mikilvægt að vinna til að sýna stuðningsmönnunum hvað býr í liðinu."
Yossi hefur leikið mjög vel með Liverpool síðustu vikurnar og hann var besti maður vallarins gegn Sunderland í gærkvöldi. Hann heldur vonandi áfram á sömu braut í næstu leikjum því það býr mikið í þessum snjalla Ísraelsmanni þótt hann sé ekki mikill á velli.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

