| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Nú styttist í rimmu Liverpool og Real Madrid í Meistaradeildinni en fyrri hluti hennar fer fram eftir viku. Við könnuðum hvernig ykkur litist á viðureignina núna fyrir áramótin og í ljós kom að stærstur hluti ykkar bíður spenntur eftir leikjunum! Aðeins litlum hluta ykkar fannst það ekki nógu gott að Liverpool skyldi hafa dregist gegn Real Madrid.

Hér er niðurstaðan úr könnuninni!

Mér finnst það frábært 69,10 %

Mér finnst það allt í lagi 22,98 %

Mér finnst það ekki nógu gott 7,92 %

Heildarfjöldi atkvæða: 2311.

Litlu áður en dregið var til 16 liða úrslita könnuðum við hvaða lið þið vilduð að Liverpool fengi í drættinum. Mjög mörgum varð að ósk sinni um að Liverpool fengi tækifæri á að takast á við Real Madrid. Portúgalska liðið Sporting frá Lissabon var þó það lið sem efst var á blaði yfir æskilega mótherja. Ef miðað er við útkomuna úr þessum tveimur könnunum fer ekkert á milli mála að stuðningsmenn Liverpool eru mjög spenntir fyrir leikjunum við spænska stórliðið.

Hér er niðurstaðan úr könnuninni!

Sporting Lisbon 37,42 %

Real Madrid 33,22 %

Inter Milan 11,91 %

Lyon 9,40 %

Villarreal 8,05 %

Heildarfjöldi atkvæða: 596.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan