Forsíða

Frétt

18.02.2009 12:02 | Heimir Eyvindarson

Fréttir af lánsmönnum

Liverpool dúóið Godwin Antwi og Peter Gulacsi, sem eru í láni hjá Hereford, áttu stóran þátt í sigri liðsins á gamla stórveldinu Leeds United í gær.

Ungverski markmaðurinn Gulacsi varði víti í leiknum og Antwi, sem kom til liðsins rétt fyrir leik í gær, lagði upp annað markið í 2-0 sigri.

Þessir tveir kappar eru ekki einu lánsmennirnir frá Liverpool sem eru að gera góða hluti þessa dagana.

Vængmaðurinn Adam Hammill kom við sögu í sigurleik Barnsley á Sheffield Wednesday í gær og Skoski miðvallarleikmaðurinn Ryan Flynn skoraði fyrir Wrexham í 3-2 sigri á Grays Athletic um helgina.

Þá hafa miðvörðurinn Jack Hobbs og markvörðurinn David Martin leikið stórt hlutverk í liði Leicester sem komið er með 10 stiga forskot á toppi 2. deildar.

Paul Anderson hefur einnig staðið sig vel fyrir Nottingham Forest í 1. deildinni í vetur. Hann hefur skorað 2 mörk í 18 leikjum, en liðið hefur átt í mesta basli í vetur.


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • EJS
  • Ölgerðin