| Grétar Magnússon

Antwi lánaður

Godwin Antwi, varnarmaðurinn ungi frá Ghana, hefur verið lánaður til Hereford United.  Meiðsli eru mikil í herbúðum Hereford og því óskuðu þeir eftir því að fá Antwi að láni.

Godwin hefur áður verið í láni hjá Accrington Stanley, Hartlepool United og Tranmere Rovers þar sem hann var fyrr á tímabilinu. Nú er hann sem sagt kominn til Hereford United og verður þar næsta mánuðinn. Hann hittir þar fyrir liðsfélaga sinn úr varaliðinu en ungverski markvörðurinn Peter Gulacsi er búinn að vera hjá félaginu undanfarnar vikur.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan