Rafael van der Vaart er kokhraustur
Rafael van der Vaart, leikmaður Real Madrid, segist halda að leikmenn Liverpool óttist mjög að mæta á Bernabeu í næstu viku, en þá fer fram fyrri viðureign þessara fornfrægu félaga í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.
Bæði félögin eiga að baki glæsta sögu í Evrópukeppni meistaraliða, Real Madrid hefur hampað Evrópubikarnum 9 sinnum og Liverpool 5 sinnum.
En þrátt fyrir að Liverpool hafi átt mikilli velgengni að fagna í Evrópuboltanum er van der Vaart þess fullviss að leikmenn liðsins verði skjálfandi á beinunum í næstu viku.
,,Við erum einfaldlega Real Madrid, þessvegna held ég að leikmenn Liverpool muni hræðast okkur", segir Hollendingurinn kokhraustur.
,,Við höfum á að skipa frábæru liði og ég er viss um að þetta verður frábær leikur. Við leggjum allt kapp á að standa okkur vel í Evrópu og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að við förum alla leið í keppninni."
Vonandi verður upplitið á Hollendingnum ekki svona djarft þegar þessari rimmu er lokið!
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

