L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
09.02.2009 20:02
|
Ólafur Haukur Tómasson
Kelly framlengir samning sinn
Miðvörðurinn efnilegi Martin Kelly hefur framlengt samning sinn hjá Liverpool um eitt ár og því gildir samningur hans við Liverpool fram til júní árið 2011.
Kelly sem hefur slegið í gegn hjá unglinga- og varaliði Liverpool þeytti frumraun sína með aðalliðinu þegar liðið mætti PSV Eindhoven í Meistaradeild Evrópu. Hann var einnig valinn í undir-19 ára landslið Englands í fyrsta skiptið en Englendingar munu etja kappi við Spánverja.
Hann útskrifaðist úr Akademíu Liverpool árið 2007 en hann átti við meiðsli að stríða og missti úr tveimur árum í Akademíunni. Hann hins vegar lagði því enn harðar að sér og er það að skila sér núna en hann er lykilmaður í varaliðinu og hefur þeytt frumraun sína með aðalliðinu.
Spennandi verður að sjá hvort hann muni koma til með að hafa svipuð áhrif á Liverpool og leikmenn eins og Jaime Carragher eða Steven Gerrard.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld