| Ólafur Haukur Tómasson

Babel vonast eftir stærra hlutverki

Hollendingurinn Ryan Babel spilaði stórt hlutverk í liði Liverpool á síðasta tímabili en eftir gott tímabil í fyrra þá hefur honum ekki tekist að halda strikinu þar sem frá var horfið.

Hann hefur skorað þrjú mörk fyrir liðið á tímabilinu og þar ber hæst að nefna sigurmark hans í leik Liverpool og Manchester United á Anfield fyrr í vetur, en á síðasta tímabili skoraði hann tíu mörk.

Hann hefur verið kallaður 'ofur skiptimaðurinn' vegna þess að oftar en ekki byrjar hann á bekknum og kemur inn með mikinn kraft og hefur skorað nokkur mörk eftir að hafa átt slíka innkonu en það er eitthvað sem að hann hefur viljað breyta með því að fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu.

Hann segist einnig vilja spila sem framherji hjá Liverpool frekar en á kantinum og nú þegar Robbie Keane hefur yfirgefið félagið þá er hann bjartsýnn á að hann muni fá fleiri tækifæri í framlínunni.

"Ég hef átt mjög góð samtöl við Rafa Benítez. Ég sagði honum að ég er mjög ánægður hjá Liverpool. Þetta er staðurinn sem ég vil verða góður leikmaður. Robbie hefur farið til Tottenham og það eykur möguleika mína töluvert.

Ég er tilbúinn í meiri spilatíma. Að hitta stjórann og tala við hann um framtíðina var mjög mikilvægt. Hann eyðir miklum tíma og krafti í að tala við okkur, hann gefur sér tíma fyrir mig. Við töluðum um kerfið sem við spilum og hvernig hann vill að ég og aðrir leikmenn hegðum okkur í kerfinu.

Hann hefur sagt mér hvaða hlutverki ég muni geta gengt í framtíðinni og hvers hann býst við af mér núna, og þá mögulega sem kantmaður. Ég hef hins vegar ekki haldið því leyndu að minn hinsti draumur er að verða framherji hjá Liverpool. Það er mitt markmið og Benítez veit það. Ég hef sagt honum að mig hungrar í að spila þá stöðu." sagði Babel.

Babel var í byrjunarliði Liverpool gegn Portsmouth síðastliðna helgi en hann var tekinn af velli og Fernando Torres kom inn í hans stað, ekki er hægt að neita því að sú skipting hafi skipt sköpum fyrir Liverpool.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan