| Heimir Eyvindarson

Mascherano: Megum ekki hengja haus

Javier Mascherano hvetur félaga sína í dag til að gleyma vonbrigðum FA-bikarsins og einbeita sér frekar að því að leggja Portsmouth að velli í deildinni á laugardaginn.

Þar sem toppliðið Manchester United leikur ekki fyrr en á sunnudag hefur Liverpool möguleika á að tylla sér á toppinn, a.m.k. um stundarsakir, með sigri gegn Portsmouth á laugardaginn. Eftir helgina verður síðan gert tveggja vikna hlé á keppni úrvalsdeildarinnar og Mascherano segir það ákaflega mikilvægt að fara inn í það hlé með sigurbros á vör, fremur en vonbrigði og beiskju.

,,Það hefur verið mikið leikjaálag að undanförnu, en nú er það bara þessi eini leikur og svo tveggja vikna frí þannig að það er ekkert annað í boði en að við gefum okkur 100% í það verkefni."

,,Ef við leikum eins og við lékum á móti Chelsea þá getum við unnið alla. Við vitum að við verðum að vinna Portsmouth, en gerum okkur jafnframt grein fyrir því að leikurinn verður erfiður því þeir eru með mjög sterkt lið. Það er mjög erfitt að mæta þeim á útvelli."

,,Þetta verður örugglega hörkuleikur, þeir eru líkamlega sterkir og munu leggja áherslu á að dæla háum boltum á Peter Crouch og reyna síðan að vinna seinni boltann. En eins og ég segi, ef við spilum eins og við gerðum á móti Chelsea þá er ég viss um að við munum vinna."

,,Auðvitað erum við allir hundsvekktir yfir tapinu fyrir Everton í bikarnum, en við megum ekki gleyma því að við erum enn í góðum málum í deildinni og bráðum mætum við Real Madrid í meistaradeildinni þannig að við höfum enn að heilmiklu að keppa."

Tapið gegn Everton í framlengingu á miðvikudaginn var fyrsta tap liðsins síðan í nóvember, en Mascherano er þess fullviss að liðið verði fljótt að komast á beinu brautina aftur.

,,Það var hrikalega svekkjandi að tapa rimmunni við Everton. Það gerði okkur erfiðara fyrir að missa Lucas af velli, en þrátt fyrir að vera manni færri í 40 mínútur vorum við aðeins broti frá því að komast í vítakeppni."

,,Við megum alls ekki hengja haus þó að þetta hafi farið svona, við verðum að muna það að við erum í góðri stöðu í deildinni. Við viljum halda okkur í toppbaráttunni og þá má ekki slaka á eitt augnablik", segir Argentínumaðurinn harðskeytti að lokum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan