Staðfest hefur verið að Steven Gerrard verður frá í þrjár vikur vegna rifins vöðva aftan í læri.
Þetta þýðir að Gerrard missir af leiknum gegn Portsmouth á laugardaginn. Næsti leikur liðsins er svo ekki fyrr en 22. febrúar gegn Manchester City á Anfield og það er ólíklegt að hann verið búinn að ná sér fyrir þann leik.
Líklegra er að hann verði látinn ná sér að fullu svo hann geti spilað gegn Real Madrid í fyrri leik 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar þann 25. þessa mánaðar.