| Ólafur Haukur Tómasson

Nóg af sóknarmönnum

Mörgum stuðningsmönnum Liverpool finnst líklega skrítið hvers vegna Liverpool seldi framherjann Robbie Keane aftur til Tottenham á lokadegi félagsskiptagluggans í gær. Ekki var annar framherji keyptur í staðinn en Rafael Benítez segir að nóg sé af sóknarmönnum í leikmannahópi Liverpool þrátt fyrir söluna á Keane.

Þegar Rafael Benítez var spurður hvort að salan á Keane muni draga úr sóknarkrafti Liverpool þá sagði hann: "Það held ég ekki, vegna þess að við höfum Fernando Torres. Fólk hefur verið að segja 'Torres hefur verið meiddur' en við höfum einnig Dirk Kuyt, Ryan Babel og David Ngog í liðinu.

Ef við skildum þurfa aðra möguleika þá höfum við Krisztian Nemeth sem hefur verið að leika vel fyrir varaliðið sem og Dani Pacheco sem hefur einnig verið að spila vel. Við gætum einnig stillt upp Steven Gerrard, Yossi Benayoun eða Nabil El Zhar sem aftari framherja, svo við höfum næg gæði í hópnum. Ég tel að þetta muni bjargast."

Úkraínski framherjinn Andriy Voronin er einnig enn í röðum Liverpool, en hann var lánaður til Þýskalands í sumar þar sem hann hefur verið að spila mikilvægt hjá liði Herthu Berlín. Líklegst mun Liverpool þó ekki kalla hann til baka úr láni heldur gæti þetta reynst gullið tækifæri fyrir yngri leikmenn liðsins til að stíga upp og láta til sín taka.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan