Sami Hyypia er kominn í 25 manna meistaradeildarhópLiverpool á ný, eftir að hafa þurft að fylgjast með riðlakeppninni úr fjarlægð.
Hyypia var ekki valinn í hópinn fyrir riðlakeppnina, en eftir skínandi góða frammistöðu finnska varnarjaxlsins á tímabilinu hefur Benítez ákveðið að skipta honum inn í hópinn í stað Philipp Degen, sem lítið hefur kveðið að í vetur.
Sögusagnir höfðu verið á kreiki um að Benítez ætlaði Hyypia ekki heldur sæti í meistaradeildarhópnum fyrir útsláttarkeppnina, en nú er semsagt komið á daginn að þær hafa ekki átt við rök að styðjast.
Nokkur lið hafa fylgst grannt með gangi mála hjá Hyypia, sem oft hefur spilað meira en í vetur. Nágrannarnir í norðrinu, Newcastle og Sunderland, hafa t.d. sýnt áhuga á að krækja í kappann, en nú er ljóst að honum er enn um sinn ætlað hlutverk í Liverpool liðinu.