Tveir leikmenn lánaðir
Tveir efnilegir leikmenn úr varaliðinu hafa verið lánaðir til neðri deilda í Englandi. Þetta eru þeir Peter Gulacsi markvörður og Adam Hammill miðjumaður.
Gulacsi (á mynd hér til hægri) mun ganga til liðs við Hereford United sem spila í League One og verður hann hjá þeim til 2. maí. Hereford verma sem stendur 23. sæti deildarinnar sem er fallsæti.
Adam Hammill (á mynd hér fyrir neðan) fer til Barnsley sem spila í næst efstu deild og eru í 19. sæti sem stendur. Hann verður einnig á láni út tímabilið og mun snúa aftur til Liverpool í byrjun maí. Adam var í láni hjá Blackpool fyrr á þessari leiktíð.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

