| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Á dögunum könnuðum við hvaða leikmaður ykkur, lesendum Liverpool.is, þótti standa sig best í desember. Fyrir valinu hjá ykkur varð Steven Gerrard og þarf það val ekki að koma á óvart því hann lék frábærlega og skoraði fimm mörk í sjö leikjum. Framganga hans í 5:1 útisigri gegn Newcastle United verður lengi í minnum höfð. Hann skoraði þá tvö mörk og lagði upp tvö.

Annar í kjörinu varð Xabi Alonso sem er búinn að leika mjög vel á leiktíðinni. Hann skoraði í stórsigrinum á Newcastle. Finnski herforinginn Sami Hyypia varð í þriðja sæti en hann lék mjög vel í vörn Rauða hersins í jólamánuðinum. Hann skoraði svo eitt mark og kom það á St James Park.

Hér er niðurstaðan úr könnuninni!

Steven Gerrard 44,26 %

Xabi Alonso 19,71 %

Sami Hyypia 11,36 %

Emiliano Insua 10,97 %

Robbie Keane 7,83 %

Jamie Carragher 4,37 %

Einhver annar 1,50 %

Heildarfjöldi atkvæða: 1532.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan