| Birgir Jónsson
Rafael Benítez er óánægður yfir að Liverpool hafi farið sér of hægt í samningaviðræðum við Daniel Agger.
Stjórinn hefur varað við því að sama ástand gæti skapast með aðra leikmenn ef klúbburinn fari ekki að horfast í augu við vandann. Framtíð Agger hefur orðið að æ meira umtalsefni vegna þess að viðræður vegna samnings hafa dregist á langinn og engin niðurstaða fengist.
AC Milan eru reiðubúnir að fá danska landsliðsmanninn til liðs við sig, og sögusagnirnar hafa farið á flug eftir að umboðsmaður leikmannsins, Per Steffensen, sást á fundi með stjórnarmönnum úr röðum Milan í síðustu viku.
Liverpool byrjuðu viðræður við Agger um nýjan samning í nóvember, en síðan hefur leikmaðurinn látið í ljós áhyggjur sínar á því að viðræðurnar hafi dregist svo þrátt fyrir að hann hafi látið í ljós löngun sína í að vera áfram á Anfield.
Með leikmenn eins og Dirk Kuty og Alvaro Arbeloa, sem eru einnig á síðustu 18 mánuðum sinna samninga, hefur Benítez þrýst á Liverpool að láta ekki svipaða óvissu hafa áhrif á aðra lykilmenn sína.
"Samningamál Aggers hafa gengið of hægt", sagði Benítez, en lið hans tekur á móti Everton í 209. Merseyslagnum í kvöld. "Agger er nú í blöðunum vegna þess að við vorum ekki nógu fljótir. Ég var að tala við Agger og umboðsmann hans og Agger sagði mér að hann vildi vera áfram. Hollusta hans við liðið er 100%, en þeir hafa verið að bíða og bíða og bíða og vita ekki hvað er í gangi. Þetta gæti orðið eins með fleiri leikmenn. Ég vil klára mín samningamál á einni viku og vinna í öðrum málum vegna þess að ég var aðeins að hugsa um hvað væri best fyrir klúbbinn minn. Ég veit ekki hvort að Milan ætti að valda áhyggjum en ég veit að leikmaðurinn vill vera hér áfram. Hann vill vera og þannig getum við fundið lausn."
Þegar Steven Gerrard var nálægt því að yfirgefa Anfield sumarið 2005, sagði hann seinagang í að hefja viðræður vegna nýs samnings ástæðu þess að hann hefði næstum farið. Benítez hefur áður tjáð óánægju sína yfir hraðanum á kaupum og sölum á Anfield, sem stuðlar að löngun hans til að hafa meiri völd yfir þeim málum.
Eigendurnir hafa ekki hug á að veita honum þá völd, sem leiddi til þess að Benítez neitaði nýjum samningi á föstudag.
"Ég veit ekki hversu erfitt það verður að leysa samningsmálið," sagði Benítez.
Ég veit aðeins að ég sleit því vegna þess að ég held að það sé best fyrir klúbbinn minn.
Það ætti samt ekki að vera erfitt að leysa það. Ég er aðeins að tala um að vinna innan ákveðins fjárhagsramma, ekki að stjórna öllu. Við höfum áætlun til langs tíma, en ég er aðeins að einbeita mér að Evertonleiknum vegna þess að það er mikilvægasti hluturinn."
Benítez hefur vísað á bug sögusögnum um að hann vilji koma Rick Parry í burtu sem framkvæmdastjóra, en telur að aðeins knattspyrnustjórinn ætti að meta verð leikmanna sem væru keyptir.
"Ég vil ekki stjórna 100%. Ég vil aðeins vinna innan þess fjárhagsramma sem ég hef. Ég á ekki í neinum vandamálum gagnvart Rick eða neinum öðrum framkvæmdastjóra.
Þetta er um hvernig ég get stjórnað klúbbnum á sem bestan hátt í framtíðinni. Ef þú hefur 20 milljónir punda, þá geturu eytt í 4 leikmenn, 5 milljónum í hvern eða 20 milljónum í einn leikmann. Hver veit rétt verð? Knattspyrnustjórinn. Það skiptir ekki máli hvort ég hef einn framkvæmdastjóra eða 20. Stjórinn verður að ákveða hvernig peningunum er eytt."
Samt sem áður telur Benítez að það sé ekki nauðsynlegt fyrir Liverpool að fylgja meginlandsmódelinu með því að ráða yfirmann tæknisviðs(technical director).
"Á Spáni og öðrum löndum þá er það yfirmaður tæknisviðs sem ákveður hver stjórnar hverri deild og knattspyrnustjórinn höndlar það sem snýr að knattspyrnunni. En ég þarf ekki slíkan stjóra hér," sagði Benítez að lokum.
TIL BAKA
Benítez deilir á yfirmennina vegna Agger

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan