Rafael Benítez hefur verið gagnrýndur fyrir að selja Robbie Keane og margt verið ritað um það mál. Með þeirri ákvörðun sýndi Rafa að hann er óhræddur við að taka erfiðar ákvarðanir.
Rafael hefur stundum látið í veðri vaka að hann verði sjálfur að ráða endanlega hvaða leikmenn eigi að kaupa og selja. Stundum hefur því nefnilega verið haldið fram að Rick Parry forstjóri Liverpool vilji hafa hönd í bagga með ákvörðunum um kaup og sölur. Rafa vill ráða leikmannamálunum en segist þó ekki fara fram á einræðisvald innan félagsins. Hann sagði þetta á dögunum í viðtali við News of the World.
"Ég er ekki að fara fram á alræðisvald en ég vil stjórna því hvernig þeim fjármunum, sem eru fyrir hendi, er ráðstafað. Þetta tengist ekki neinum samskiptaerfiðleikum við Rick eða aðra stjórnarmenn. Samskipti okkar eru í góðu lagi. En þetta snýst allt um það hvernig ég get stýrt félaginu best þegar horft er til framtíðar. Ef maður hefur 20 milljónir sterlingspunda til skiptanna á maður þá að kaupa fjóra leikmenn fyrir fimm milljónir eða eyða allri upphæðinni í einn leikmann? Hver veit hvernig á að vinna úr þessu? Svarið er einfalt. Framkvæmdastjórinn einn getur tekið ákvörðun um þetta! Það skiptir engu hvort ég vinn með einum forstjóra eða 20 forstjórum. Framkvæmdastjórinn verður að taka lokaákvörðun um hvernig peningum er eytt til leikmannakaupa."