Tom Hicks: Rafa verður áfram næstu fimm árin
Tom Hicks, annar eigandi Liverpool, segir að Rafel Benítez verði við stjórnvölinn hjá Liverpool næstu fimm árin. Hér á eftir fer
viðtal við Hicks sem Sky Sports tók í dag.
Hver eru þín viðbrögð við þeim fregnum að Rafa Benítez hafi hafnað samningstilboði til sín?
Eins og Rafa segir er sterkt vinnusamband milli okkar og við stöndum saman við bakið á liðinu. Við skiljum óánægju Rafa og við erum ákveðnir í að vinna með honum og ráðgjöfum hans að því að finna lausn á málinu. Við höldum áfram að ræða saman. Ég kem til Liverpool til að fylgjast með leiknum gegn Chelsea og við höfum þegar áætlað að ræða saman 30. eða 31. janúar til að ræða ýmis mál. Við leysum það sem hefur verið rætt og nú viljum við einbeita okkur að því sem gerist á vellinum - það er grannaslagur á næsta leiti.
Skilurðu hvað hann á við með því að hafa stjórn á leikmannakaupum?
Ja, Rafa hefur verið ósáttur lengi um hversu langan tíma hefur tekið að koma vissum hlutum í verk og ég held að hann sé bara að reyna, þú veist, að staðsetja sig til að geta unnið sitt verk betur. Það þarf að ná ákveðnu jafnvægi í enska boltanum og við munum vinna á þessu.
Hann hefur sagt að hann hafi verið ósáttur við þann tíma sem hlutirnir taka - hefur hann eitthvað til síns máls?
Ja, hann hefur það vissulega - en við getum lagað það og við gerum það.
Er hægt að laga þau vandamál sem eru efst á baugi?
Ég get óhikað sagt að Rafa elskar Liverpool og verður áfram framkvæmdastjóri.
Hvað tekur við eftir þetta? Þú segir að þið hittist í lok mánaðarins - verða þessi mál þá kláruð?
George og ég vinnum með lögfræðingum okkar að því að leysa málið. Ég hef alls engar áhyggjur af því.
Hvaða áhrif hefur þetta inni á vellinum, því að þú hefur sagt áður að þú sért ánægður með hvernig liðinu gengur inni á vellinum? Liverpool gengur vel, ekki satt? Hefur þetta áhrif á það?
Ég vona ekki. Þess vegna hafa ráðgjafar Rafa viljað hægja á þessu og reyna að draga athyglina frá þessu. Þeir vilja einbeita sér að því sem gerist á vellinum.
Hvernig er samband þitt og George við Rafa núna?
Ég hef verið í mjög góðu sambandi við Rafa síðastliðið ár. Við ræðum oft saman og erum enn oftar í tölvupóstsambandi. Ég hef haft mjög gaman af því fylgjast með honum vinna frábært starf á þessu ári og samband okkar er frábært.
Finnst þér þá að hægt sé að leysa vandamálin í samningaviðræðunum?
Já, það finnst mér sannarlega. Það eru sannarlega engin deilumál milli Rafa og eigendanna. Hann vill hins vegar leysa ákveðin mál til hagsbóta fyrir félagið.
Hversu ánægður ertu með gengið á þessu tímabili?
Ja, það er ekki hægt að kvarta yfir að vera á toppnum. Við hefðum viljað fá tvö stig til viðbótar um síðustu helgi en við þurfum nú að hugsa um Everton á mánudaginn.
Hver eru skilaboð þín til stuðningsmanna Liverpool?
Þeir ættu að slaka á - Rafa verður stjóri Liverpool næstu fimm árin og við munum vinna okkur í gegnum þessi lögfræðilegu deilumál.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

