| Heimir Eyvindarson

Alonso og Arbeloa klárir

Nú er orðið ljóst að Spánverjarnir Alvara Arbeloa og Xabi Alonso verða klárir í slaginn fyrir grannarimmurnar við Everton í næstu viku.

Þetta er vitanlega gleðiefni fyrir Rafael Benítez því nú getur hann valið úr nær öllum sínum bestu mönnum fyrir 209. ,,derby-viðureign" þessara erkifjenda á mánudaginn.

Arbeloa hefur verið fjarverandi í síðustu fjórum leikjum liðsins eftir að hafa tognað á hásin, en hann nú búinn að ná sér og getur á ný gert tilkall til hægri bakvarðarstöðunnar - sem Jamie Carragher hefur leyst í undanförnum leikjum.

Alonso meiddist sem kunnugt er á fæti í bikarleiknum við Preston og tók því ekki þátt í jafnteflisleiknum við Stoke á laugfardaginn. Það er óhætt að segja að Liverpool liðið hafi saknað Alonso sárlega í þeirri veiðureign, en Spánverjinn hefur verið með allra bestu mönnum liðsins það sem af er tímabilinu.  

Í viðtalið við Liverpool Echo segist Alonso vera farinn að æfa á fullu, en hann sé annþá dálítið aumur í fætinum.

,,Ég er allur að koma til, verð orðinn góður fyrir mánudaginn."

Eini aðalliðsmaðurinn sem hugsanlega verður ekki klár fyrir mánudaginn er Daniel Agger, sem er meiddur á kálfa. Þá er hinn ungi og efnilegi Emilio Insua sem kunnugt er í keppnisferð með U-20 ára landsliði Argentínu og missir því af báðum leikjunum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan