Fernando Torres er búinn að skora þrjú síðustu mörkin sem Liverpool hefur skorað gegn Everton. Hann skoraði eina mark leiksins þegar Liverpool vann 1:0 á Anfield Road í mars á síðasta ári. Fernando skoraði skoraði svo bæði mörk Liverpool þegar þeir Rauðu unnu 2:0 á Goodison Park á liðnu hausti. Hann vonast nú til að skora enn og aftur gegn þeim Bláu þegar Liverpool og Everton mætast á Anfield Raod annað kvöld.
"Það er alltaf mikil spenna í grannaslögum og maður finnur spennuna hjá stuðningsmönnunum strax daginn fyrir leik. Fyrir síðasta leik á móti Everton gaf fólk sig á tal við mig og sagði við mig að við yrðum að vinna og ég yrði að skora. Ég á mjög góðar minningar úr síðasta leik liðanna því maður færir stuðningsmönnunum mikla ánægju með því að skora mark gegn Everton."
Fernando Torres hafði áður, en hann kom til Liverpool, leikið í grannarimmum í Madríd með Atletico gegn Real. Honum tókst á hinn bóginn aldrei að skora gegn erkifjéndunum í Madríd.
"Ég hafði aldrei skorað í derby leik áður en ég fluttist til þessa lands. Það hefur því verið frábært að ná að skora þrjú mörk í tveimur leikjum gegn Everton og ekki spillir fyrir að hafa unnið þá báða. Ég vona að ég geti tekið þátt í næsta leik gegn Everton og ég vonast til að skora aftur gegn þeim."
Sem fyrr segir þá hefur Fernando Torres skorað þrjú mörk í röð gegn Everton. Enginn leikmaður Liverpool hefur skorað fjögur mörk í röð í leikjum gegn Everton. Fernando kæmist því annála hjá Liverpool F.C. með því að verða næstur leikmanna Liverpool til að skora gegn Everton.


Hér á síðunni má sjá mörkin þrjú sem Fernando Torres hefur skorað gegn Everton!