| Grétar Magnússon

Ekki tilbúinn í 90 mínútur

Fernando Torres segist ekki enn vera tilbúinn til að spila í 90 mínútur og er varkár í yfirlýsingum þess efnis að hann sé 100% klár í slagina tvo gegn Everton frá byrjun.

Hann segist þó auðvitað klæja í fingurna yfir því snúa aftur í byrjunarliðið.  Hann hefur komið inná sem varamaður í síðustu tveim leikjum og skoraði t.a.m. síðara markið gegn Preston undir blálokin.

,,Auðvitað vil ég vera í byrjunarliðinu," sagði Torres.  ,,Ég veit ekki hvort ég geti spilaði í 90 mínútur en ég get að sjálfsögðu verið í leikmannahópnum.  Mér líður mun betur og ég vona að ég snúi aftur í byrjunarliðið sem allra fyrst.  Þá get ég gleymt meiðslunum og byrjað að spila fyrir félagið sem er í mjög góðri stöðu nú í byrjun árs."

,,Undirbúningstímabilið var ekki nógu gott hjá mér eftir Evrópumót landsliða í sumar, tímabilið byrjaði of snemma og maður reynir að vera í 100% líkamlegu formi en það er erfitt þegar maður þarf að spila þrjá leiki á viku.  Núna vil ég halda mér 100% og meiðast ekki aftur."

Torres hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveim leikjum gegn Everton, þar á meðal bæði mörkin í 2-0 sigri á Goodison Park í september.  Í þeim leik spilaði hann frammi með Robbie Keane, sem lagði upp fyrra mark Torres þann daginn.

Torres fannst þessi leikur einmitt sanna það að þeir geti spilað saman í sókninni.  Þeir hafa hinsvegar lítið haft tækifæri á því að mynda góðan skilning sín á milli vegna meiðsla Torres og svo hefur Keane átt í vandræðum með að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.  Torres hefur engu að síður fulla trú á því að þeir geti myndað saman hættulegt sóknarpar.

,,Já auðvitað getum við spilað saman - en stjórinn ákveður liðið, hann er framkvæmdarstjórinn og hann er frábær sem slíkur.  Stundum geta ekki allir leikmenn spilað saman í sama liðinu.  En ég hef spilað oft með Robbie og við höfum skorað mörk þegar við spilum saman."

,,Ég held að við munum spila saman, en það er spurning í hvaða leik það verður," bætti hann við."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan