| Heimir Eyvindarson

Lausnin felst í langskotum

Albert Riera telur að lausnin á heimavallavanda Liverpool liðsins geti falist í langskotum.

Liverpool hefur gert þrjú jafntefli í röð á Anfield, gegn Hull, Fulham og West Ham, og Riera er að vonum svekktur með það, rétt eins og aðrir leikmenn liðsins, en hann telur að það gæti verið ráð fyrir leikmenn Liverpool liðsins að vera ófeimnari við að þruma á rammann ef færi gefst. Það gæti tosað þau lið sem pakka í vörn aðeins framar á völlinn og gert varnir þeirra veikari fyrir vikið.

,,Við höfum talað um það á æfingum að reyna meira af langskotum. Mér hefur tekist að skora úr langskotum og leikmenn eins og Stevie G. og Xabi Alonso eru náttúrlega frábærir skotmenn og hafa skorað fjölmörg glæsileg mörk með skotum af löngu færi."

,,Ég held að við ættum að nýta þessa hæfileika okkar betur. Stundum gengur þetta upp - stundum ekki, eins og gengur, en ef við erum kaldir og skjótum miskunnarlaust á markið um leið og færi gefst þá held ég að við munum allavega draga andstæðinga okkar aðeins framar á völlinn."

,,Sérstaklega finnst mér að við ættum að gera meira af þessu á Anfield því þar gerist það svo oft að gestirnir liggja mjög aftarlega - pakka hreinlega í vörn - og þá getur verið mjög erfitt að skapa sér góð færi."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan