| Ólafur Haukur Tómasson

Liverpool neitar að lána Ryan Babel

Sá orðrómur hefur farið eins og eldur í sinu að Ryan Babel sé ósáttur með hve fá tækifæri hann fái hjá liðinu á tímabilinu og sé orðinn órólegur. Nú greinir umboðsmaður hans frá því að Liverpool hafi hafnað beiðni Ryan að fara á láni til Ajax, fyrrum félags síns.

Hann gekk til liðs við Liverpool frá Ajax í júlí árið 2007 en hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu síðan þá. Hann hefur komið við sögu í sautján leikjum á tímabilinu en í flestum þeirra hefur hann komið inn á sem varamaður og hefur hann aðeins skorað eitt mark á tímabilinu, og það var sigurmarkið gegn Manchester United.

En eins og áður kemur fram þá hefur umboðsmaður hans, Winnie Haatrecht, greint frá því að Babel freisti þess að taka skammtíma endurkomu til Ajax en Liverpool hefur þvertekið fyrir þá beiðni hans.

"Ryan finnst hann sitja of mikið á bekknum hjá Liverpool, hann vill spila meira og bað mig um að gá hvort Ajax hefðu áhuga á að fá hann til skamms tíma. Eftir að við fengum jákvæð viðbrögð frá Ajax báðum við Liverpool um þeirra samþykki en félagið vildi ekki sjá á eftir honum.

Rafael Benítez finnst Ryan of mikilvægur til þess. Vonandi munum við sjá það í formi þess að hann fái meiri spilatíma. Til að allt verði á tæru: Ryan líður mjög vel hjá Liverpool en til að hann geti haldið áfram þróun sinni þá þarf hann meiri spilatíma." sagði Haatrecht.

Ryan hefur áður sagt að hann vilji einnig fá fleiri tækifæri í sinni upphaflegu stöðu, sem er framherji en hann hefur mest megnis spilað á vinstri kantinum hjá Liverpool og hefur staðið sig með miklum sóma í þeirri stöðu. Mögulegt er að hann fái tækifæri í framlínunni í leiknum gegn Hollandi seinna í kvöld.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan