Benítez neitar fréttum af Torres
Rafa Benítez segir það ekki rétt að Fernando Torres muni ekki spila fyrr en á næsta ári vegna meiðslanna sem hann hlaut í leiknum gegn Marseille. Benítez segir Torres á góðri leið með að ná sér af meiðslunum.
,,Fernando er að ná bata og vonandi verður hann kominn til baka fyrr en seinna," sagði stjórinn við opinbera heimasíðu félagsins.
,,Þetta er bara spurning um að bíða og setja ekki pressu á leikmanninn. Ég var með honum í dag og hann var í lagi. Hann hefur mikið sjálfstraust nú, og þegar maður hefur það þá jafnar maður sig fyrr. Allt gengur vel og ég held að hann verði kominn til á þeim tíma sem var nefndur í upphafi - kannski fyrr."
Torres var sagður verða frá vegna meiðsla í tvær til þrjár vikur eftir Marseille leikinn og eins og við sögðum frá í gær fór hann til Spánar að hitta sérfræðing vegna meiðsla sinna.
Stjórinn segir að ferðin hafi verið gagnleg.
,,Þetta var bara til að staðfesta greiningu okkar og sú var raunin. Meiðslin voru voru afturför frá fyrri meiðslum. Sérfræðingurinn hefur þekkt Torres lengi og hann er líka í góðu sambandi við sjúkraþjálfara okkar og þeir vinna saman."
,,Við erum mjög ánægðir því við vitum hvert vandamálið er og nú getum við fundið lausnina. Við vitum að það þarf að leggja hart að sér til að koma öllu í samt lag og ég held að Torres verði í góðu lagi."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

