| Birgir Jónsson
Steven Gerrard varar liðsfélaga sína við því að töpuð heimavallarstig muni koma í bakið á þeim. Á leiktíðinni hafa Liverpool gert markalaus jafntefli á heimavelli við Stoke City, Fulham og West Ham en eru samt sem áður á toppi deildarinnar.
Síðustu tveir leikir þeirra í deildinni hafa verið markalausir jafnteflisleikir og það kostaði þá möguleikann á að skapa bil á milli sín og Chelsea. Liverpool hafa þó ein stigs forskot eftir leikinn á mánudag gegn West Ham og er Gerrard yfir sig hrifinn af þeirri staðreynd að liðið er í bestu stöðu sinni til að vinna titilinn í þau 10 ár sem hann hefur verið í liðinu.
Hann sagði: "Eins og er höfum við ekki goldið þess að tapa stigum á heimavelli. En það er ekki að fara að vera svoleiðis alltaf. Við verðum að gera betur, vera stöðugri og klára lið þegar við fáum tækifæri til. En við vonum að þrátt fyrir góðan árangur síðustu ár, með því að vinna UEFA-bikarinn, Meistaradeildina og FA-bikarinn, þá eigum við enn okkar bestu daga eftir. Fyrir mér er þetta besta lið sem við höfum haft síðan ég kom upp. Þessa stundina erum við að berjast á toppi deildarinnar, en um leið og þú tekur hugann af því sem þú ert að gera eða tekur öllu sem sjálfsögðu, þá ertu settur niður á jörðina með hvelli."
Liverpool sækja Blackburn Rovers heim á morgun meðan Chelsea fara til Bolton. Báðir leikirnir hefjast klukkan 15. Hvert stig er mikilvægt í titilbaráttunni og Gerrard undirstrikar þrá liðsins til að hala inn stig jafnt og þétt og haldast á toppnum til enda leiktíðarinnar.
"Þetta er hungrað og ákveðið Liverpool-lið. Þín er minnst í fótbolta fyrir hvað þú hefur unnið, ekkert endilega hvernig þú hefur spilað. Við viljum að okkar verði minnst sem sigurvegara, en ekki aðeins þátttakenda. Á 10 árum mínum í aðalliðinu er þetta fyrsta skiptið sem við erum þar sem við erum nú á þessum tíma leiktíðar með þetta tækifæri."
TIL BAKA
Gerrard: Við munum gjalda fyrir!
Steven Gerrard varar liðsfélaga sína við því að töpuð heimavallarstig muni koma í bakið á þeim. Á leiktíðinni hafa Liverpool gert markalaus jafntefli á heimavelli við Stoke City, Fulham og West Ham en eru samt sem áður á toppi deildarinnar. Síðustu tveir leikir þeirra í deildinni hafa verið markalausir jafnteflisleikir og það kostaði þá möguleikann á að skapa bil á milli sín og Chelsea. Liverpool hafa þó ein stigs forskot eftir leikinn á mánudag gegn West Ham og er Gerrard yfir sig hrifinn af þeirri staðreynd að liðið er í bestu stöðu sinni til að vinna titilinn í þau 10 ár sem hann hefur verið í liðinu.
Hann sagði: "Eins og er höfum við ekki goldið þess að tapa stigum á heimavelli. En það er ekki að fara að vera svoleiðis alltaf. Við verðum að gera betur, vera stöðugri og klára lið þegar við fáum tækifæri til. En við vonum að þrátt fyrir góðan árangur síðustu ár, með því að vinna UEFA-bikarinn, Meistaradeildina og FA-bikarinn, þá eigum við enn okkar bestu daga eftir. Fyrir mér er þetta besta lið sem við höfum haft síðan ég kom upp. Þessa stundina erum við að berjast á toppi deildarinnar, en um leið og þú tekur hugann af því sem þú ert að gera eða tekur öllu sem sjálfsögðu, þá ertu settur niður á jörðina með hvelli."
Liverpool sækja Blackburn Rovers heim á morgun meðan Chelsea fara til Bolton. Báðir leikirnir hefjast klukkan 15. Hvert stig er mikilvægt í titilbaráttunni og Gerrard undirstrikar þrá liðsins til að hala inn stig jafnt og þétt og haldast á toppnum til enda leiktíðarinnar.
"Þetta er hungrað og ákveðið Liverpool-lið. Þín er minnst í fótbolta fyrir hvað þú hefur unnið, ekkert endilega hvernig þú hefur spilað. Við viljum að okkar verði minnst sem sigurvegara, en ekki aðeins þátttakenda. Á 10 árum mínum í aðalliðinu er þetta fyrsta skiptið sem við erum þar sem við erum nú á þessum tíma leiktíðar með þetta tækifæri."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

