Torres ánægður með þriðja sætið
Fernando Torres er afar ánægður með þá miklu viðurkenningu sem honum var sýnd þegar hann hafnaði í þriðja sæti í kjörinu á knattspyrnumanni heims á dögunum og segir að það muni verða sér mikil hvatning þegar hann kemst aftur á ferðina. Torres er sem stendur að ná sér af þrálátum meiðslum og Rafa Benítez hefur neitað að setja fjarveru hans að þessu sinni nokkur tímamörk.
Torres segir að það sé gríðarlegur heiður að hafna í þriðja sæti á eftir Christiano Ronaldo og Lionel Messi og það sé enn ein viðurkenningin á því hversu vel honum hafi gengið á sínu fyrsta tímabili í herbúðum Liverpool.
,,Þetta er virkilega mikil viðurkenning fyrir mig og einmitt mjög gott að fá eitthvað slíkt þegar maður er óleikfær vegna meiðsla. Það gefur mér mikið sjálfstraust."
,,Ég hef dálitlar áhyggjur af þessum meiðslum sem ég á í núna, sérstaklega af því að þau eru svo þrálát, en það er ekkert annað að gera en að einbeita sér að endurhæfingunni og tryggja það að ég fari mér ekki of geist. Ég verð einfaldlega að ná mér af meiðslunum og má ekki fara af stað fyrr en ég er örugglega tilbúinn. En verðlaunin eru mér mikil hvatning og hjálpa mér að berjast áfram."
,,Þetta ár hefur verið ótrúlegt hjá mér, bæði í einkalífinu og í fótboltanum. Ég vil nota tækifærið og þakka liðsfélögum mínum, bæði í Liverpool og spænska landsliðinu, fyrir þeirra þátt í þessari viðurkenningu. Þeirra framlag var auðvitað mjög mikilvægt. Án þeirra hefði ég ekki náð svona langt."
Auk þess að hljóta nú þessa viðurkenningu hefur Torres verið valinn í byrjunarlið heimsliðs FIFA, ásamt Steven Gerrard, og hefur einnig verið tilnefndur í kjöri FIFA á besta leikmanni ársins.
,,Þetta ár er það besta sem ég hef upplifað í boltanum, en markmið mitt er að halda áfram að bæta mig á hverju ári. Ég lít ekki til baka, heldur einungis fram á veginn. Ég reyni að bæta minn leik og vonast til að ég komi einnig til greina í kjörinu að ári. Og ef mér tekst að bæta mig nógu mikið þá mjakast ég kannski enn framar. Hver veit?"
,,Það erfiðasta er ekki að komast á toppinn, eða í nánd við hann, heldur að halda sér þar. Sjáiði bara Gerrard. Hann hefur aldrei unnið þessi verðlaun, en á þau jafn mikið skilið og hver annar. Hann er einn af þeim allra bestu og ég get ekki hugsað mér betri fyrirmynd en þennan frábæra liðsfélaga minn."
Torres bætir við að hann hafi aðlagast enska boltanum fyrr en búist var við.
,,Ég vissi það þegar ég lagði upp í þetta ævintýri að leikstíll minn myndi henta enska boltanum vel, það reyndist rétt og það var virkilega góð ákvörðun að ganga til liðs við Liverpool og spila í þessari sterku deild. Á síðasta keppnistímabili komumst við næstum því í úrslit Meistaradeildarinnar og það var í raun synd og skömm að við skyldum ekki fara alla leið til Moskvu."
,,Og hvað get ég síðan sagt um spænska landsliðið? Verðlaunin sem við lönduðum í sumar var náttúrlega ótrúleg og hefur gert það að verkum að við spænsku landsliðsmennirnir komum nú frekar til greina en áður, þegar verðlaun og viðurkenningar eru annars vegar", segir Torres að lokum.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

