| Ólafur Haukur Tómasson
TIL BAKA
Fimm uppáhalds mörk Steven Gerrard
Á opinberu heimasíðu Liverpool er sérstök Steven Gerrard vika til að halda upp á að tíu ár séu liðin frá því að fyrirliðinn lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Liverpool. Hér telur Steven upp fimm uppáhalds mörk sín fyrir félagið.
Númer 5:

Fyrsta markið mitt gegn Everton árið 2001. Ég elska að spila gegn Everton, skora gegn þeim og sigra þá. Ég átti mér marga drauma sem barn, einn þeirra var að skora gegn Everton. Ég elska leikina og ég held að það sé vegna þess að svo mikil hræðsla er um að tapa fyrir þeim. Fyrsta markið mitt gegn þeim - þar að auki á Goodison - er eitt sem ég mun aldrei gleyma og það þarf að vera í upptalningunni.
Númer 4:

Að skora í úrslitum UEFA bikarnum gegn Alaves í Dortmund gaf mér sjálfstraustið um að ég gæti staðið mig í stærstu leikjunum. Ég var ungur en ég vissi eftir leikinn að ég gæti haldið áfram og skorað enn fleiri mörk fyrir Liverpool.
Númer 3:

Í þriðja sætinu er fyrra markið mitt í úrslitaleik FA bikarsins árið 2006 gegn West Ham. Það kom á góðum tíma og jafnaði stöðuna í leiknum eftir að við höfðum lent tveimur mörkum undir. Þetta þýddi að draumar okkur um að vinna keppnina voru enn til staðar.
Númer 2:

Ég þarf að velja seinna markið mitt í FA bikarnum gegn West Ham árið 2006. Það var hræðilegt á lokamínútum leiksins hugsandi um að ég myndi bráðum sjá leikmenn West Ham dansandi um Cardiff með gullið. Þess vegna var markið mitt svo mikilvægt - það gaf okkur framlengingu og möguleikann á að halda áfram og vinna keppnina. Við lögðum svo hart að okkur þennan dag á erfiðum velli í Cardiff og ég átti bara ekkert eftir undir lokin - þetta var mest svona 'skjóta og vona' og sem betur fer fór þetta inn. Sem barn þá dreymdi manni alltaf um að spila í úrslitum FA bikarsins. Það skipti engu máli hverjir mættust maður horfði alltaf á þetta í sjónvarpinu og að geta fengið tækifærið til að leiða lið þitt út á völlinn í úrslitunum, að skora og hampa bikarnum er ótrúleg lífsreynsla.
Númer 1:

Uppáhalds markið mitt verður að vera skallinn minn í úrslitum Meistaradeildarinnar. Þetta var skalli af stuttu færi en að það hafi búið að baki að við komumst aftur inn í leikinn þá var þetta mikilvægt mark. Ég held að markið gaf okkur trú um að halda áfram og bjarga leiknum. Í hálfleik leit út fyrir að við myndum tapa 5-0 eða 6-0 vegna þess að við höfðum verið yfirspilaðir, en markið mitt gaf leikmönnunum og stuðningsmönnunum trúnna á að við gætum komið aftur inn í leikinn. Þess vegna er þetta svo mikilvægt, og afgangurinn - er eins og þeir segja - sögulegur.

Fyrsta markið mitt gegn Everton árið 2001. Ég elska að spila gegn Everton, skora gegn þeim og sigra þá. Ég átti mér marga drauma sem barn, einn þeirra var að skora gegn Everton. Ég elska leikina og ég held að það sé vegna þess að svo mikil hræðsla er um að tapa fyrir þeim. Fyrsta markið mitt gegn þeim - þar að auki á Goodison - er eitt sem ég mun aldrei gleyma og það þarf að vera í upptalningunni.

Að skora í úrslitum UEFA bikarnum gegn Alaves í Dortmund gaf mér sjálfstraustið um að ég gæti staðið mig í stærstu leikjunum. Ég var ungur en ég vissi eftir leikinn að ég gæti haldið áfram og skorað enn fleiri mörk fyrir Liverpool.


Ég þarf að velja seinna markið mitt í FA bikarnum gegn West Ham árið 2006. Það var hræðilegt á lokamínútum leiksins hugsandi um að ég myndi bráðum sjá leikmenn West Ham dansandi um Cardiff með gullið. Þess vegna var markið mitt svo mikilvægt - það gaf okkur framlengingu og möguleikann á að halda áfram og vinna keppnina. Við lögðum svo hart að okkur þennan dag á erfiðum velli í Cardiff og ég átti bara ekkert eftir undir lokin - þetta var mest svona 'skjóta og vona' og sem betur fer fór þetta inn. Sem barn þá dreymdi manni alltaf um að spila í úrslitum FA bikarsins. Það skipti engu máli hverjir mættust maður horfði alltaf á þetta í sjónvarpinu og að geta fengið tækifærið til að leiða lið þitt út á völlinn í úrslitunum, að skora og hampa bikarnum er ótrúleg lífsreynsla.

Uppáhalds markið mitt verður að vera skallinn minn í úrslitum Meistaradeildarinnar. Þetta var skalli af stuttu færi en að það hafi búið að baki að við komumst aftur inn í leikinn þá var þetta mikilvægt mark. Ég held að markið gaf okkur trú um að halda áfram og bjarga leiknum. Í hálfleik leit út fyrir að við myndum tapa 5-0 eða 6-0 vegna þess að við höfðum verið yfirspilaðir, en markið mitt gaf leikmönnunum og stuðningsmönnunum trúnna á að við gætum komið aftur inn í leikinn. Þess vegna er þetta svo mikilvægt, og afgangurinn - er eins og þeir segja - sögulegur.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

