| Sf. Gutt

Steven Gerrard meiddur

Steven Gerrard tognaði á læri í gær þegar Liverpool vann 2:0 sigur á Bolton. Hann átti góðan leik og skoraði seinna mark Liverpool sem var sjöunda mark hans á leiktíðinni. Steven getur ekki leikið með enska landsliðinu núna í vikunni þegar það leikur vináttulandsleik við Þjóðverja í Berlín. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem Steven meiðist en hann meiddist á nára í haust.

Steven Gerrard gæti líka misst af einum eða fleiri leikjum með Liverpool. Talsmaður Liverpool sagði að Steven yrði úr leik í sjö til tíu daga. Liverpool á heimaleik við Fulham næsta laugardag og svo er heimaleikur við Marseille í Meistaradeildinni í vikunni þar á eftir. Vonandi verður fyrirliðinn fljótur að ná sér.

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan