| Heimir Eyvindarson

Rafa vill hvergi annars staðar vera!

Samkvæmt staðarblaðinu Liverpool Echo eru samningaviðræður Rafa Benitez við Liverpool liðið nú á lokastigi. Eigendur félagsins, þeir Tom Hicks og George Gillett, hafa lýst yfir ánægju með störf Rafa og eru reiðubúnir að framlengja núverandi samning hans. Þó enn séu 18 mánuðir eftir af núgildandi samningi Benites við félagið, vill hann klára samningaviðræður sem fyrst til að forðast allar getgátur um framtíð hans hjá félaginu. Bæði Hicks og Gillett hafa sett sig í samband við Rafa og lýst yfir vilja til að hefja samningaviðræður með formlegum hætti. Benites sagðist í samtali við Liverpool Echo vera ánægður með framgang mála og eiga von á því að viðræðurnar færu í gang í næstu viku.

„Ég held að þetta séu góðar fréttir því Hicks hefur sagt mér, fyrir hönd þeirra beggja, að þeir séu tilbúnir í viðræður. Þeir hafa lofað því að setja sig í samband við ráðgjafa mína fyrir lok næstu viku”. 

„Þetta er einnig jákvætt fyrir félagið því ef við komum þessu frá, þá slepp ég við að svara spurningum um framtíð mína á hverjum einasta fréttamannafundi”.

„Ég er þar sem ég vil vera. Það er aðalmálið, þannig að viðræðurnar munu frekar snúast um hversu lengi ég mun vera hér, en hvort ég mun vera hér”.

Benitez hrósaði einnig stuðningsmönnum félagsins og sagði:. „Þeir hafa tekið mér frábærlega”.

„Ég er mjög hamingjusamur hér, og fjölskylda mín sömuleiðis, og það er skoðun mín að með því að hefja þetta samningaferli núna og leiða það til lykta á fljótan og farsælan hátt munum við senda frá okkur mjög jákvæð og ákveðin skilaboð”.

Hinir Bandarísku eigendur Liverpool liðsins hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir lýsa ánægju með störf Benitez: „Rafa er að gera góða hluti með liðið. Við erum ánægðir með framgang liðsins og við lítum björtum augum á viðræður við hann og ráðgjafa hans um framlengingu samningsins”.

Benitez segist hvergi annarsstaðar vilja vera, og bætir við: „Í framtíðinni verður byggður nýr leikvangur fyrir félagið, eins og margoft hefur verið rætt, og ég vil gjarnan vera hér þegar það verður loks að veruleika”.

„Það er mikilvægt að allir sem að liðinu koma viti hver verður framkvæmdastjóri þess næstu 2-3 árin a.m.k. og þess vegna vona ég að við getum klárað þessar viðræður svo fljótt sem auðið er”.

„Stöðugleiki er einn af lykilþáttum í starfi hvers félags og því óska ég þess að við komum þessu frá, svo leikmennirnir geti einbeitt sér að því sem þeir gera best; að spila fótbolta”.

„Um daginn gantaðist ég með það að ef mér yrði boðinn 20 ára samningur myndi ég samþykkja hann með ánægju!”

Síðan Benitez yfirgaf Valencia, sumarið 2004, og tók við Liverpool liðinu hefur hann tvisvar sinnum komið því alla leið í úrslit meistaradeildarinnar. Annar þessara leikja er að sjálfsögðu hinn ógleymanlegi úrslitaleikur í Istanbul þegar liðið lenti þremur mörkum undir á móti AC Milan, en tókst á ótrúlegan hátt að snúa töpuðum leik upp í einn sætasta sigur félagsins fyrr og síðar, og tryggja félaginu þar með sinn fimmta Evrópumeistaratitil. 

Hann hefur einnig komið FA-bikar, Góðgerðarskildi og Ofurbikar Evrópu í hús fyrir félagið.

Æðsta takmark Benitez hefur þó ekki enn náðst, en það er að sjálfsögðu að koma enska meistaratitlinum í hús, en það hefur sem kunnugt er ekki tekist síðan 1990. Besta byrjun Liverpool í deildinni í meira en áratug vekur þó vonir um að Benitez og menn hans muni ná því takmarki á þessu keppnistímabili. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan