29.10.2008 12:10 | SSteinn
Leikurinn í beinni á Players í kvöld
Nú er að fylgja eftir sigrinum á Chelsea. Við fjölmennum því að sjálfsögðu á Players í Kópavogi í kvöld. Vel hefur verið mætt að undanförnu og góð og mikil stemmning, það má raunar segja það um allt þetta tímabil það sem af er. Nú er um að gera að halda uppteknum hætti, gleyma amsti dagsins og gleðjast í góðum hóp.
Til baka