| Ólafur Haukur Tómasson

Hetjurnar okkar: Hluti V

Þessa dagana voru flestir aðalliðsmenn Liverpool á ferðalagi með landsliðum sínum, opinber heimasíða félagsins ákvað að nýta tækifærið og kynnast varaliðinu enn betur. Síðan hefur rætt við nokkra af efnilegri leikmönnum félagsins og nú er talað við nokkra þeirra um hetjur þeirra úr fótboltanum.

Í þessum lokahluta verður rætt við þrjá efnilega leikmenn sem að hafa komið í gegnum Akademíu Liverpool og freista þess að feta í fótspor manna eins og Steven Gerrard, Michael Owen, Robbie Fowler og Jamie Carragher. Leikmennirnir sem rætt verður við eru miðvörðurinn Martin Kelly, miðjumaðurinn Steven Irwin og vinstri kantmaðurinn Gary Mackay-Steven.

Martin Kelly

Hver var hetjan þín þegar þú varst yngri? Mark Fish sem að var í Bolton . Ég er frá Warrington en ég hélt með Bolton. Hann var miðvörður sem að reyndist vera góð kaup. Við áttum nokkur góð ár þegar hann var þar. Ég átti ársmiða á leiki með Bolton og hann var uppáhaldsleikmaðurinn minn, sá ég ég leit upp til.
Hvaða hæfileika hafði hann sem að þú dáðir svo? Hann las leikinn mjög vel og hann leit út sem leiðtogi, þó að hann hafi komið frá öðru landi. Hann var mjög staðfastur í vörninni og hafði mikil áhrif á Bolton liðið á þeim tíma.


Steven Irwin 

 


Hver er hetjan þín? Það er Stevie G [Steven Gerrard]. Hann hefur verið lykilmaður í Liverpool, mínu liði, frá því að ég fór að fylgjast almennilega með fótbolta. Það eru alhliða hæfileikar hans, hann er miðjumaður en getur sótt og varist, hann er fljótur, hann getur sent, hann getur allt.
 
Hafðirðu nafnið hans aftan á treyjunni þinni? Ég var alltaf að breyta nöfnunum á treyjunum mínum - það var mismunandi á milli ára. Maður þóttist vera leikmaður eins og Stevie eða Robbie Fowler. Svo þegar maður verður svona 16 til 17 ára þá hættir maður þessu en þig dreymir samt um að ná jafn góðum árangri og þessir leikmenn, og á sama tíma þá verður maður að vera maður sjálfur. Ef þú ætlar að verða næsti Steven Gerrard þá verðuru fyrst að vinna að því að verða næsti Steve Irwin. Þú lítur upp til leikmanna en þú verður að fara þína eigin leið.

Gary Mackay-Steven
 

Hver er hetjan þín? Lionel Messi, en í rauninni allir góðir kantmenn. Ég horfi á myndbönd af honum á YouTube og skoða brögðin hans.
 
Hvað er það sem heillar þig svona?
Hæfileikarnir hans og það að hann er óhræddur við að reyna hluti. Hann gerir oft eitthvað öðruvísi, eitthvað einstakt.

Hvaða nafn hafðirðu aftan á treyjunni þinni? Ég studdi ekki enskt lið sem barn, en ég hafði gaman af því að horfa á Arsenal. Ég hafði Ibrahimivic aftan á Juventus treyju einu sinni, vegna þess að ég hrífst af hæfileikaríkum leikmönnum.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan