| Sf. Gutt

Landsliðsfréttir

Landsleikjahrotu október lauk í kvöld. Leikmenn Liverpool voru á skotskónum en tveir fóru meiddir af velli. Ekki er enn vitað hversu alvarleg meiðsli þeirra eru.

Robbie Keane hélt áfram að bæta landsleikjamet sitt og Íra þegar hann skoraði eina markið gegn Kýpverjum í Dublin. Robbie skoraði með skalla af stuttu færi snemma leiks og meira var ekki skorað. Steve Finnan lék ekki með vegna meiðsla. Markið hans Robbie var það 35. sem hann skorar fyrir landsliðið.

Yossi Benayoun skoraði í öðrum landsleiknum í röð. Fyrirliði Ísraelsmanna kom þeim yfir í Lettlandi í upphafi síðari hálfleiks eftir góða rispu. Þetta mun hafa verið tíunda landsliðsmark hans. Allt stefndi í sigur Ísraels en Vladimir Kolesnicenko jafnaði þegar tvær mínútur voru eftir.

Englendingar náðu sinni bestu byrjun í riðlakeppni á stórmóti með fjórða sigri sínum í röð. Enskir sóttu Hvít Rússa heim og Steven Gerrard kom þeim yfir með þrumuskoti utan teigs í sínum 70. landsleik. Pavel Sitko jafnaði metin fyrir leikhlé. Wayne Rooney tryggði sigur Englands með tveimur mörkum í síðari hálfleiks. Fyrra markið skoraði hann eftir sendingu frá Emile Heskey sem lék sinn 50. landsleik. Hann hefur gengið í endurnýjun lífdaga í landsliðinu undir stjórn Fabio Capello. Michael Owen, fyrrum sóknarfélagi Emile hjá Liverpool, kemst á hinn bóginn ekki í landsliðið! Steven lagði upp seinna markið fyrir Wayne. Hann hefði svo átt að skora sitt annað mark undir lokin en skaut í stöng úr þröngu færi eftir að hafa leikið á markvörðinn.  

Finnar fengu skell í Rússlandi þar sem þeir töpuðu 3:0. Sami Hyypia lék í vörninni. Goðsögnin Jari Litmanen skipti við Daniel Sjölund, fyrrum lærling hjá Liverpool, undir lokin.

Andrea Dossena var í byrjunarliði ítölsku heimsmeistaranna gegn Svartfellingum. Ítalir unnu 2:1.

Hollendingar unnu nauman sigur í Noregi. Þeir Ryan Babel og Dirk Kuyt hófu leikinn. Ryan fór meiddur af velli eftir tæpan hálftíma. Mark Van Bommel skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik. Dirk var nærri því að skora en skot frá honum fór í þverslá. John Arne Riise var í liði Norðmanna. Íslendingar unnu Makedóna í sama riðli á Laugardalsvelli með marki Veigars Páls Gunnarssonar.

Evrópumeistarar Spánverja fóru til Brussel og léku við Belga í hellirigningu. Wesley Sonck kom heimamönnum yfir á 7. mínútu. Þetta var í fyrsta sinn í 717 mínútur sem skorað er hjá Spánverjum. Þetta var landsmet hjá Evrópumeisturunum. Ekki lagaðist það fyrir Spánverja þegar Fernando Torres tognaði á læri og fór af velli á 17. mínútu. Andres Iniesta jafnaði fyrir Spán á 36. mínútu. Allt stefndi í jafntefli, sem hefði verið sanngjarnt, þegar David Villa skoraði á 88. mínútu. Xabi Alonso kom inn á sem varamaður á 64. mínútu. Jose Reina og Alvaro Arbeloa voru á bekknum allan tímann.

Lærisveinar John Toshack börðust hetjulega gegn Þjóðverjum. Piotr Trochowski, leikmaður Hamburger SV, skoraði eina markið og Veilsverjar máttu þola naumt tap. Þetta var fyrsta landsliðsmarkið sem Piotr skorar.

Hér eru myndir úr landsleikjunum af vefsíðu BBC.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan