Hetjurnar okkar: Hluti III
Þessa dagana eru flestir aðalliðsmenn Liverpool á ferðalagi með landsliðum sínum, opinber heimasíða félagsins ákvað að nýta tækifærið og kynnast varaliðinu enn betur. Síðan hefur rætt við nokkra af efnilegri leikmönnum félagsins og nú er talað við nokkra þeirra um hetjur þeirra úr fótboltanum.
Í dag munum við heyra í þremur spænskum strákum sem að leika með varaliðinu. Miðjumaðurinn Francisco Duran, varnarmaðurinn Daniel Ayala og sóknarmaðurinn Daniel Pacheco sem að sló í gegn í æfingaleikjum sumarsins.
Francisco Duran
Hver v ar hetjan þín í æsku? Juan Roman Riquelme. Hann hefur mikla hæfileika sem að gera hann einstakann. Hann er mjög þægilegur með boltann og hefur mikla útsjónarsemi. Hann sér hluti á vellinum og að mínu mati er hann sá besti. Ég hef aldrei séð hann í persónu á leikvellinum en það er eitthvað sem mig langar að gera.
Hafðirðu nöfn einhverja aftan á treyjunum þínum? Þegar ég var lítill man ég eftir að hafa haft Guerrero - hann spilaði fyrir Atletico Bilbao. Ég þróaði leik minn til að líkjast Riquelme. Ég myndi elska það að spila eins og hann, þó ég viti að það er alveg ómögulegt.
En þessa dagana - hvaða leikmann líturðu upp til hér á Melwood. Steven Gerrard er fyrirmynd fyrir alla leikmenn, en einnig yrði ég að segja Xabi Alonso. Hann er fyrirmyndin mín vegna þess að hann spilar svipaða stöðu og ég. Við höfum marga góða miðjumenn, eins og þá Xavi og Iniesta. Þeir hafa góða stjórn á boltanum og því eru þeir líka fyrirmyndir mínar.
Daniel Pacheco

Hver var hetjan þín í æsku? Zinedine Zidane. Ég horfði á hann hjá Real Madrid – sem er mitt lið – og fyrir það Juventus. Hann er góður á boltanum, stjórnun hans á honum og hvað hann getur með boltann er frábært.
Bíddu hægur, þú ert stuðningsmaður Real Madrid en gekkst til liðs við Barcelona? Já ég fór í þrjá daga til Barcelona og aðra þrjá til Madrid og mér leist betur á Barcelona.
Hafðirðu nafn Zidane aftan á treyjunum þínum? Já og ég hef enn. Ég fylgist með öllum leikjum Real Madrid.
Daniel Ayala

Hver var hetjan þín í æsku? Þessa dagana lít ég mikið upp til Daniel Agger og Steven Gerrard, en þegar ég var yngri þá var það Raul. Ég er miðvörður og hef alltaf verið en ég yrði að segja hann af því að hann er svo góður leikmaður.
Hvað fannst þér um það þegar hann var ekki valinn í landsliðið fyrir Evrópumótið í sumar? Hann skoraði ekki mikið á síðustu leiktíð svo það var örugglega rétt ákvörðun, en í gegnum árin þá hefur hann verið frábær leikmaður. Ég hafði nafnið hans aftan á Real Madrid treyjunni minni þegar ég var yngri.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

