| Ólafur Haukur Tómasson

Kynnumst varaliðsmönnunum: Martin Kelly

Hávaxinn og fágaður varnarmaður, þetta eru fín orð til að lýsa ungstirninu Martin Kelly. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Liverpool þegar liðið vann góðan sigur á PSV í Meistaradeild Evrópu.

Hér á dögunum birtist viðtal við hann, eins og nokkra félaga hans úr varaliði félagsins. Þar sitja þeir fyrir spurningum sem tengjast lífi þeirra í fótboltanum sem og einkalífi þeirra.

Ef þú værir ekki í fótbolta, hvað þá?
 
Eignahönnuður.
 
Hvaða hringitón notarðu?
 
Gamal dags hringingu [gerir brrrr hljóð].
 
Uppáhalds matur?
 
Það verður að vera spagettí og kjötbollur.
 
Nafn hvers hafðirðu aftan á treyjunni þinni þegar þú varst yngri?
 
Það var reyndar Jamie Carragher og að vera að vinna með honum núna er frábært. Hann kemur alltaf til manns og segir manni ef maður hefur átt góða æfingu þegar maður er með aðalliðinu. Þegar ég lék í æfingaleik gegn Tranmere þá kom hann til mín og sagði "Vel gert". Það er eitthvað sem ég gat lifað á næstu vikurnar.
 
Uppáhalds mynd?
 
Allar Bourne myndirnar

Uppáhalds staður að ferðast til?
 
Chicago.
 
Uppáhalds hljómsveit?
 
Oasis.
 
Hvaða þrjá hluti tækirðu með þér á eyðieyju?
 
Fótbolta - það er allt. Ef ég yrði að velja þrjá myndi ég líka taka hálsfestina mína og áttavita.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur?
 
Run's House.
 
Síðasta bók sem þú last?
 
Ævisaga Peter Crouch.
 
Hver er stærstur í sturtunni hjá varaliðinu?

Godwin Antwi.
 
Hvað stendur upp úr ferli þínum?
 
Að spila fyrsta leikinn minn fyrir varaliðið á síðustu leiktíð gegn Newcastle. Ég var að passa upp á Shola Ameobi. Hann ýtti mér til fyrstu tíu mínúturnar en eftir það þá hafði ég yfirhöndina.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan