Sigrar hjá varaliðinu
Um þessar mundir líður nokkuð langt á milli leikja hjá varaliðinu og Gary Ablett greip þá til þess að útvega liðinu sínu tvo æfingaleiki. Þeir gengu vel og Liverpool vann báða leikina.
Fyrri leikurinn var nú á föstudaginn þegar Chelsea kom í heimsókn norður til Liverpool. Varalið Liverpool og Chelsea leika alla jafna ekki saman því liðin leika í sitt hvorum landsriðlinum. Chelsea byrjaði leikinn betur en Liverpool náði forystu á 18. mínútu. Hollendingurinn Vincent Weijl skoraði þá með viðstöðulausu þrumuskoti. Liverpool réði gangi mála eftir markið og svo gott sem gerði út um leikinn tólf mínútum seinna og aftur var það Hollendingur sem skoraði. Jordy Brouwer notfærði sér þá mistök í vörn Chelsea og skoraði af öryggi. Liverpool hefði getað unnið stærri sigur. Í síðari hálfleik átti Stephen Darby hörkuskot í stöng af löngu færi.
Liverpool: Hansen (Gulacsi), Darby, Kelly, Huth, San Jose, Spearing (Irwin), Bruna (Simon), Weijl (Pacheco), Flynn (Eccleston), Brouwer (Dalla Valle) og Flora (Ayala).
Seinni leikurinn var gegn Port Vale á mánudaginn. Liverpool vann öruggan sigur 4:1 og réði gangi mála frá upphafi til enda. Ryan Flynn kom Liverpool yfir á 17. mínútu eftir góðan undirbúning Daniel Pacheco sem var besti maðurinn á vellinum. Liverpool jók forystuna í 2:0 á 34. mínútu þegar Jay Spearing skoraði með glæsilegu bogaskoti. Daniel gerði svo endanlega út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks með tveimur mörkum á skömmum tíma. Fyrra markið hans kom á 48. mínútu eftir góðan undirbúning þeirra Steven Irwin og Andras Simon. Spánverjinn snjalli skoraði svo annað mark sitt nokkrum andartökum seinna eftir stungusendingu frá Francisco Duran. Port Vale minnkaði muninn mínútu fyrir leikslok þegar Emiliano Insua stýrði boltanum í eigið mark eftir hættulega fyrirgjöf. En sigur Liverpool var öruggur allan tímann.
Liverpool: Gulacsi (Bouzanis), Darby (Irwin), Insua, Kelly (Huth), San Jose (Ayala), Plessis, Spearing (Duran), Bruna, Flynn (Weijl), Ngog (Simon) og Pacheco.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

