| Ólafur Haukur Tómasson
Mikið hefur verið í umræðunni undanfarna daga hve illa gengur fyrir framherja Liverpool að skora á tímabilinu og er umræðunni að miklu leyti beint til Robbie Keane og Fernando Torres.
Torres sem var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili með 33 mörk og hefur hann eingöngu skorað eitt mark á tímabilinu. Robbie Keane skoraði fjórtán mörk á síðasta tímabili fyrir Tottenham hefur ekki enn skorað mark síðan hann gekk til liðs við Liverpool í sumar.
Albert Riera er fullviss um að þeir muni báðir koma til með að smella saman von bráðar. Miklar væntingar voru gerðar fyrir samstarfi þeirra Keane og Torres í framlínu Liverpool en það hefur þó ekki ræst sem skildi úr þessari sameiningu þessa mögnuðu framherja, Riera segist einnig hafa trú á að samstarf þeirra verði góð.
"Málið með Fernando og Robbie er að allir leikmenn lenda á tímapunkti þar sem þeim tekst ekki að skora, en þeir eru báðir frábærir leikmenn. Eina vandamálið er að skot þeirra eru ekki að hafna í netinu þessa stundina, en ég er viss um að þeir muni skora mörg mörk." sagði Riera við opinbera heimasíðu Liverpool.
Hann bætti einnig við að við gætum séð góð tengsl milli hans og Torres á vellinum: "Ég hef þekkt Fernando mjög lengi, ég var með honum í undir-18 ára, undir-21 árs og Spænska landsliðinu. Ég er viss um að það munu geta góð tengsl okkar á milli vegna þess að við þekkjum leikstíl hvors annars mjög vel."
Vonandi munum við fá að sjá mörkin flæða hjá leikmönnum Liverpool en markaleysi þeirra Torres og Keane er ekki það eina sem hefur vakið athygli, þar sem að Dirk Kuyt hefur ekki skorað í deildarleik síðan í nóvember á síðasta ári, en hann hefur þó skorað nokkur mjög mikilvæg mörk í Meistaradeild Evrópu og skilað góðum frammistöðum þrátt fyrir markaleysi.
TIL BAKA
Riera hefur trú á að mörkin munu koma
Mikið hefur verið í umræðunni undanfarna daga hve illa gengur fyrir framherja Liverpool að skora á tímabilinu og er umræðunni að miklu leyti beint til Robbie Keane og Fernando Torres. Torres sem var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili með 33 mörk og hefur hann eingöngu skorað eitt mark á tímabilinu. Robbie Keane skoraði fjórtán mörk á síðasta tímabili fyrir Tottenham hefur ekki enn skorað mark síðan hann gekk til liðs við Liverpool í sumar.
Albert Riera er fullviss um að þeir muni báðir koma til með að smella saman von bráðar. Miklar væntingar voru gerðar fyrir samstarfi þeirra Keane og Torres í framlínu Liverpool en það hefur þó ekki ræst sem skildi úr þessari sameiningu þessa mögnuðu framherja, Riera segist einnig hafa trú á að samstarf þeirra verði góð.
"Málið með Fernando og Robbie er að allir leikmenn lenda á tímapunkti þar sem þeim tekst ekki að skora, en þeir eru báðir frábærir leikmenn. Eina vandamálið er að skot þeirra eru ekki að hafna í netinu þessa stundina, en ég er viss um að þeir muni skora mörg mörk." sagði Riera við opinbera heimasíðu Liverpool.
Hann bætti einnig við að við gætum séð góð tengsl milli hans og Torres á vellinum: "Ég hef þekkt Fernando mjög lengi, ég var með honum í undir-18 ára, undir-21 árs og Spænska landsliðinu. Ég er viss um að það munu geta góð tengsl okkar á milli vegna þess að við þekkjum leikstíl hvors annars mjög vel."
Vonandi munum við fá að sjá mörkin flæða hjá leikmönnum Liverpool en markaleysi þeirra Torres og Keane er ekki það eina sem hefur vakið athygli, þar sem að Dirk Kuyt hefur ekki skorað í deildarleik síðan í nóvember á síðasta ári, en hann hefur þó skorað nokkur mjög mikilvæg mörk í Meistaradeild Evrópu og skilað góðum frammistöðum þrátt fyrir markaleysi.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

