| Grétar Magnússon

Agger vill vinna sæti sitt aftur

Það hefur vakið furðu margra að Daniel Agger skuli ekki hafa spilað meira með Liverpool það sem af er tímabilinu.  Hinsvegar hafa þeir Martin Skrtel og Jamie Carragher varla stigið feilspor í þeim leikjum sem þeim hafa spilað og því ekki auðvelt fyrir Agger að komast inní byrjunarliðið.

Agger var mikið meiddur á síðasta tímabili og spilaði nánast ekki neitt frá septembermánuði í fyrra.  Hann var svo ekki einu sinni á bekknum gegn Manchester United um síðustu helgi en hann var þó á bekknum gegn Marseille í vikunni.

Fréttir frá Danmörku fyrr í vikunni gáfu til kynna að Agger væri ósáttur með stöðu sína á Anfield og að hann hefði í huga að kaupa upp samning sinn við félagið í janúar.

Hinsvegar liggur fyrir að félagið muni bjóða Agger nýjan samning og hafði hann þetta að segja:  ,,Ég sat á bekknum gegn Marseille, þannig að það var bæting frá síðasta leik.  Það eina sem ég get gert til að komast í liðið er að leggja hart að mér á æfingum."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan