| Sf. Gutt

Fyrsta deildartap varaliðsins á árinu

Fyrsta deildartap varaliðs Liverpool varð staðreynd í kvöld þegar liðið heimsótti Sunderland. Reyndar tapaði varalið Liverpool síðast fyrir næstum einu ári en þá tapaði liðið líka fyrir Sunderland. Það tap kom í október.

Gary Ablett tefldi fram reyndara liði en oftast áður en fimm leikmenn byrjunarliðsins hafa leikið með aðalliðinu þar af þrír á þessari leiktíð. Í liði Sunderland voru líka nokkrir reyndir leikmenn og einn þeirra sóknarmaðurinn Michael Chopra var ætíð ógnandi. Hann lagði upp færi snemma leiks fyrir Jordan Henderson en Ástralinn Dean Bouzanis varði af stakri snilld. Hann varði svo vel frá Michael. Fyrsta færi Liverpool kom undir lok hálfleiksins kom þegar Daniel Pacheco átti góða aukaspyrnu sem Nick Colgan varði. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik. 

Liverpool lék ekki vel í fyrri hálfleik en liðið braggaðist eftir leikhlé. David Ngog átti þá gott skot rétt yfir. Það voru hins vegar heimamenn sem komust yfir á 60. mínútu. Gamla kappinn Graham Kavanagh átti þá skot lengst utan af velli sem fór í innanverða stöngina. Michael Chopra náði frákastinu og kom boltanum í markið. Meistararnir náðu að jafna á 75. mínútu. Nabil El Zhar, sem er hér á mynd, náði þá að brjótast upp vinstra megin og skora með góðu skoti. Laglegt einstaklingsframtak hjá Marokkóstráknum. Markið dugði þó ekki til jafnteflis því heimamenn herjuðu fram sigurmark sex mínútum fyrir leikslok þegar varamaðurinn Nathan Luscombe skallaði í mark af stuttu færi. Englandsmeistararnir máttu því lúta í gras í fyrsta sinn í ellefu mánuði. Liðið lék ekki vel en hefði þó átt að geta haldið jafntefli.

Liverpool: Bouzanis, Darby, Insua, San Jose, Huth, Plessis, Pennant, Spearing (Brouwer 71. mín.), Ngog, Pacheco (Flynn 59. mín.) og El Zhar.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Dean Bouzanis. Hann kom í veg fyrir fleiri mörk Sunderland með því að verja hvað eftir annað.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan