| Grétar Magnússon

Riera gefur okkur nýja vídd

Fabio Aurelio telur að kaupin á Albert Riera gefi Liverpool nýja vídd í keppni um bikara á tímabilinu.  Aurelio var einn af fáum leikmönnum sem var eftir á Melwood í landsleikjahlénu og honum líkaði það sem hann sá til Riera á æfingasvæðinu.

Aurelio vonast nú til þess að þeir tveir nái vel saman á vinstri kantinum hjá Liverpool.

,,Albert átti mjög gott tímabil með Espanyol á síðasta ári," sagði Aurelio í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins.  ,,Við vorum að leita að góðum vinstri kantmanni og hann var góð kaup fyrir okkur.  Hann er leikmaður sem býr yfir hraða, hann getur sent góðar sendingar fyrir markið og skorað mörk.  Hann verður góður möguleiki fyrir stjórann og hann mun bæta gæði liðsins."

,,Ég hef verið að æfa með honum í landsleikjahlénu og hann er leikmaður sem maður getur spilað vel með.  Ég vona að stjórinn spili okkur saman og vonandi getum við gert það sama í leiknum á laugardaginn."

Aurelio nefnir einnig hversu ánægður hann er að vera aftur farinn að vinna með Mauricio Pellegrino en þeir spiluðu saman hjá Valencia þegar Benítez þjálfaði liðið.  Í dag eru þeir góðir vinir.

,,Við vorum félagar hjá Valencia og utan vallar áttum við gott samband.  Hann á þrjú börn eins og ég og strákarnir okkar eru saman í skóla.  Hann var mér mikil hjálp þegar ég fyrst til Spánar og það er ánægjulegt að sjá hann aftur hjá Liverpool.  Sem leikmaður var Pellegrino mjög skipulagður og hann var alltaf mjög einbeittur.  Hann er að vinna með vörninni og vinnur mjög taktískt með okkur og þá sérstaklega þegar kemur að því að verjast föstum leikatriðum."

,,Hann er okkur mikil hjálp ásamt Sammy Lee.  Þetta tímabil hefur öll þau hráefni sem til þarf til að verða gott tímabil.  Við erum að leggja hart að okkur og reynum að einbeita okkur að hverju smáatriði.  Við vonumst til þess að flytja þetta yfir á leikina og gera Liverpool sterkara á þessu tímabili."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan