Forsíða

Frétt

09.09.2008 16:09 | HI

Fánadagur á Players á laugardag

Fyrsti fánadagur Liverpoolklúbbsins á þessu tímabili verður á laugardag. Hann verður í tengslum við stórleik Liverpool og Man. Utd.

Fánadagar hafa verið fastur liður í starfi Liverpoolklúbbsins undanfarin ár. Þar verður ýmislegt meira gert en venjulega í kringum leiki. Meðal þess má nefna:

- verðlaun fyrir flottasta búninginn, bæði meðal yngri og eldri kynslóðarinnar
- verðlaunagetraunir
- sérlega vel skreyttur salur

Húsið opnar klukkan 11 - leikurinn hefst kl. 11:45.

Nánar auglýst síðar - en takið daginn frá og mætið tímanlega!


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin