Stuðningsmenn Liverpool hafa hótað að loka reikningum sínum hjá Royal Bank of Scotland ef bankinn semur við Gillette og Hicks um endurfjármögnun á lánum þeirra. Þetta kemur í kjölfar frétta í enskum fjölmiðlum í dag um að hinir arabísku DIC séu að undirbúa 500 milljón punda tilboð í félagið.
Tom Hicks og George Gillett, núverandi eigendur félagsins, virðast ekki nægilega fjársterkir til að geta fjármagnað byggingu nýs vallar. Í byrjun þessa árs gerðu þeir fjármögnunarsamning við Royal Bank of Scotland upp á 350 milljónir punda. Gallinn á þessu samningi er að vaxtakostnaður upp á 30 milljónir punda á ári lendir á Liverpool FC.
Þessi samningur rennur hins vegar út í byrjun næsta árs. Og nú hefur stuðningsmannahópur sem gengur undir nafninu Spirit of Shankly skorað á Royal Bank of Scotland (RBS) að neita þeim um endurfjármögnun. "Ef eigendurnir koma aftur og biðja um meiri peninga biðjum við bankann um að neita því, þar sem það gengur gegn öllum óskum mikils meirihluta stuðningsmanna Liverpool. Við hvetjum einnig Royal Bank of Scotland til að endurskoða afstöðu sína með tilliti til láns þeirra til George Gillett og Tom Hicks. Það lán á að endurfjármagna snemma árs 2009 og við vitum að Royal Bank of Scotland hefur síðasta orðið um það. Við biðjum þá um að neita beiðni bandarísku eigendanna fyrir hönd allra stuðningsmanna Liverpool," sagði talsmaður hópsins í samtali við Liverpool Echo.
Hópurinn heldur fund á laugardag og verður hugsanlega ákveðið þar að loka reikningum hjá RBS.