| Grétar Magnússon

Munum komast í toppgír fljótlega

Rafa Benítez veit eins og aðrir að lið sitt hefur ekki verið að spila vel í þeim fimm leikjum sem liðnir eru af tímabilinu. Engu að síður deilir liðið efsta sæti deildarinnar með Chelsea og er komið áfram í Meistaradeildinni.

Á næsta leiti eru stórleikir gegn Manchester United og Everton svo ekki sé minnst á að liðið hefur líka leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og býst Benítez við því að liðið muni fljótlega komast í topp form.

,,Javier Mascherano, Lucas og Babel komu allir seint til liðs við okkur og ég er viss um að eftir nokkrar vikur munum við verða betri," sagði stjórinn í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins.

,,Við þurfum að halda boltanum betur og spila á hraðara tempói."

Síðasti leikur liðsins var á Villa Park þar sem ásættanlegt stig náðist án Steven Gerrard og að mestu leyti án Fernando Torres líka.

Benítez bætti við:  ,,Að ná jafntefli án þessara leikmanna sýndi þau gæði sem búa í liðinu - en þetta hefði samt getað verið betra.  Eftir að hafa horft á upptökur af leiknum finnst mér að við hefðum átt að vinna.  Við fengum fjögur færi - Alonso, Kuyt, Ngog og Keane.  Þeir áttu tvö færi og nokkur hættuleg föst leikatriði.  Stigið var gott en þetta hefði getað farið betur."

Við breyttum kerfinu og spiluðum 4-3-3 og gáfum Xabi Alonso meira frjálsræði, þegar hann var svo pressaður meira breyttum við yfir í 4-2-3-1.  Fólk sagði; Ó Robbie Keane var ekki að spila vel vinstra megin.  En við urðum að hugsa um að vinna leikinn, ekki bara um einn leikmann."

Gerrard er að jafna sig af nárameiðslum sem munu halda honum frá keppni í 10-15 daga.  Benítez er spurður um möguleika hans á því að spila gegn United og sagði hann þetta:  ,,STeven er góður.  Hann er byrjaður að hjóla og mun byrja að skokka og ég held að hann verði klár fljótlega."

Benítez vill svo sjá Daniel Agger bæta sig í samkeppninni um stöður í miðri vörninni, en margir hafa verið að furða sig á því að Daninn hafi ekki verið að spila meira það sem af er.  Hefur hann ekki spilað síðan í fyrri leiknum við Standard Liege.

Benítez sagði:  ,,Martin Skrtel er góður varnarmaður, Jamie Carragher er mjög stöðugur og Sami Hyypia er góður valmöguleiki líka, þannig að Daniel þarf að leggja hart að sér ef hann vill spila og hann veit það.  Við viljum hafa tvo leikmenn í hverri stöðu en hugarfarið hjá Daniel er gott og hann verður klár."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan