Titilvörnin hófst vel
Varaliðsmeistararnir hófu titilvörnina vel með góðum útisigri í kvöld. Liverpool lagði Middlesborough að velli 1:0 á Riverside í hellirigningu.
Leikurinn hófst rólega en það voru Englandsmeistararnir sem náðu fyrr áttum og hófu að herja á heimamenn. Það var bjargað á línu frá Jordy Brouwer, sem er hér á mynd, og svo komst Liverpool yfir á 17. mínútu. Daniel Pacheco sendi þá fyrir frá hægri á Jordy sem skallaði að marki. Boltinn fór í þverslá en Hollendingurinn fylgdi vel á eftir og skoraði. Rétt á eftir átti Daniel skot í stöng og Liverpool hafði öll völd til leikshlés.
Svissneski landsliðsmaðurinn Philipp Degen sneri aftur til leiks eftir meiðsli þegar hann kom inn sem varamaður í hálfleik. Heimamenn hresstust í síðari hálfleik og Ungverjinn Peter Gulacsi fékk loks eitthvað að gera í markinu. Hann gerði, eins og fram hefur komið, samning við Liverpool í vikunni eftir að hafa verið á láni. Peter varði tvívegis vel. Ungverjinn Andras Simon, sem kom inn á sem varamaður, hefði átt að gera út um leikinn á 70. mínútu. Markamaður Boro Jason Steele átti þá misheppnað útspark sem fór beint á Andras en hann náði að bæta fyrir mistökin og verja. Meistararnir héldu sínu og hófu vörnina á deildartitlinum eins og best var á kosið.
Hollendingurinn Vincent Weijl lék sinn fyrsta leik með varaliðinu.
Liverpool: Gulacsi, Ayala (Degen 46. mín.), Darby, San Jose, Huth, Kelly, Bruna, Spearing, Brouwer (Simon 61. mín.), Pacheco og Weijl (Irwin 85. mín.). Ónotaðir varamenn: Bouzanis og Crowther.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Daniel Pacheco. Spánverjinn sýndi sköpunargáfu sínu vel með því að vera maðurinn á bak við bestu sóknir Liverpool.
Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

