| Sf. Gutt

Gamlir kunningjar og nýir!

Liverpool á stefnumót við tvo gamla kunningja og einn nýjan í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þetta varð ljóst nú síðdegis þegar dregið var. Liverpool var í efsta styrkleikaflokki og drógst gegn PSV Eindhoven frá Hollandi, franska liðinu Marseille og spænska liðinu Atletico Madrid.

Sem fyrr segir þá eru tveir mótherjanir gamlir kunningjar. PSV Eindhoven, sem er hollenskur meistari, lék tvívegis gegn Liverpool leiktíðina 2006/2007 og vann Liverpool þrjá af fjórum leikjum liðanna. Jan Kromkamp, fyrrum leikmaður Liverpool, er enn á mála hjá PSV. Marseille var í riðli með Liverpool á síðustu leiktíð. Franska liðið vann á Anfield Road en Liverpool sigraði í Frakklandi. Sá sigur kom Liverpool upp úr riðlinum. Bolo Zenden er enn hjá Marseille ef rétt er vitað.

Atletico Madrid er á hinn bóginn nýr mótherji ef svo má segja. Í liðinu eru hins vegar tveir fyrrum leikmenn Liverpool. Þetta eru þeir Luis Garcia og Florent Sinama Pongolle. Líklega eru þeir báðir kátir enda höfðu þeir mikinn áhuga á að dragast gegn Liverpool. Leikirnir tveir verða þó líklega mest spennandi fyrir Fernando Torres sem er enn í tölu heilagra hjá stuðningsmönnum Atletico Madrid eftir dvöl sína þar! Gulldrengur Atletico mun sem sagt snúa aftur heim!

Hér að neðan er drátturinn í heild sinni.

A riðill

CHELSEA
ROMA
BORDEAUX
CFR CLUJ

B riðill

INTER MILAN
WERDER BREMEN
PANATHINAKOS
ANOTHOSIS FAMAGUSTA

C riðill 

BARCELONA
SPORTING LISBON
BASEL
SHAKHTAR DONESTSK

D riðill 

LIVERPOOL
PSV
MARSEILLE
ATLETICO MADRID

E riðill 

MAN UTD
VILLARREAL
CELTIC
ÁLABORG

F riðill  

LYON
BAYERN MUNICH
STEAUA BUCHAREST
FIORENTINA

G riðill 

ARSENAL
PORTO
FENERBACHE
DYNAMO KIEV

H riðill

REAL MADRID
JUVENTUS
ZENIT ST PETERSBURG
BATE BORSOV

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan